föstudagur, september 24, 2004

Langur dagur

Var að vinna til rúmlega 8 og alveg búin að fá þokkalega nóg þegar ég kom heim. Ekkert í ísskápnum og ég nennti hvort eð er ekki að elda. Rölti út á Prince of Teck til að fá mér einn öllara og reyna að ákveða hvað ég ætti að borða. Þar sem ég sat í rólegheitum með bjórinn minn og gemsann (sem er hinn ágætasti félagsskapur þegar kona situr ein á ölstofu) kom til mín stúlka og spurði hvort ég væri að bíða eftir einhverjum. Nei, nei, ekki var ég það. Hún fékk þá að tylla sér hjá mér, var frá Slóveníu og í fríi í London í viku og vantaði sárlega einhvern til að djamma með, hvort ég væri ekki til í að klúbbast (go clubbing) með henni. Ekki var ég nú alveg til í það, amk ekki þetta sama kvöld en samþykkti að kíkja með henni út á lífið annað kvöld. Við röltum nú samt á írska pöbbinn sem er þarna í nágrenninu og þar var hin ágætasta stemning og meira að segja opið til miðnættis, sem hlýtur að teljast óvenjulegt :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home