mánudagur, janúar 16, 2006

Flutt aftur á gamla bloggið mitt...

Hitt blogg svæðið er nefnilega ekki alveg að virka almennilega, eldri færslur týnast og ég veit ekki hvað og hvað. Svo skilst mér að það sé miklu einfaldara að setja inn myndir hérna þó að sennilega sé nú bara sniðugast að koma sér upp myndasíðu. En þið þurfið að hafa smá þolinmæði með mér þar sem útlitið á síðunni er eitthvað skrýtið og ég ekki alveg búin að læra hvernig ég laga það.
En það hefur sem sagt ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast... enda orðið langt síðan og það var stutt og snubbótt blogg ef ég man rétt :) Ég var náttúrulega aldrei búin að rekja jólafríið í smáatriðum og ég held að ég sleppi því nú bara, tek það frekar svona í stórum dráttum...

Miðvikudagur 21. des.:
Kl. 16:00 lending á Keflavíkurflugvelli. Guðbjörg systir sótti mig á völlinn, með flatbrauð með hangikjöti í poka handa stóru systur... þessi elska.
Bíleigubíll
Beint í heimsókn til Helga bró & co. Og stúlkan er náttúrulega bara fallegasta barn sem fæðst hefur. Ég get svo svarið það að það heyrðist ekki mannsins mál fyrir eggjastokkahljóðum í mér!! Ég veit ekki hvar þetta endar... vonandi með óléttu á endanum en ekki með einhverjum óþekktum manni eins og Drífu dreymdi í nótt!! Hún fletti því upp í galdrabókinni sinni og vanalega er ólétta í draumi tákn um velgengni og þróun. Og það var ekki bara ég sem var ólétt heldur hún og mágkona hennar líka :) Þannig að það er bara helvítis hamingja og sæla framundan :)

Fimmtudagur 22. des.:
Hádegisverður á Apótekinu með vinkonum úr ýmsum áttum
Labb upp Laugaveginn með vinkonu úr einni átt - enduðum á Óliver í smá hvítvíniHeimsókn til Helga bró & fjölsk. m.a. til að skrifa innkaupalista.

Föstudagur 23. des.:
Morgunkaffi hjá H bró & co og síðan var ætt í Bónus til að klára matarinnkaupin. Við kláruðum þau á mettíma enda engir aular á ferðinni.
Skötuveisla á Sögu með Hrönn & Sigga
Skrapp aðeins uppí vinnu eftir það að sækja jólagjöf sem ég átti þar og heilsa uppá liðið á 4. hæðinni.
Heim á Víðimelinn að pakka inn jólagjöfum.
Fallegustu mæðgur norðan Alpafjalla kíktu í heimsókn en hún varð frekar stutt í annan endann þar sem sú stutta gerði í buxurnar og engin auka bleyja með í för :)

Laugardagur 24. des.:Jól í Bogahlíð. Alveg hreint yndisleg. Við systkinin þreyttum frumraun okkar í rjúpnaeldamennsku og tókst bara nokkuð vel til. Kvöldið leið bara í rólegheitum, Mánalingurinn svo stilltur að það þurfti hreinlega að reka á eftir honum við að lesa á pakkana. Hann þurfti svo mikið að spjalla og skoða það sem við hin vorum að fá. Og stúlkukornið eins og lítill engill, heyrðist ekki í henni, bara svar og drakk og svaf :)

Sunnudagur 25. des.:
Brunaði í bústaðinn til Dunnu og Geira ásamt Soffíu frænku sem býr í Danmörku. Algjört afslappelsi, dásamlegur matur og enn dásamlegri félagsskapur.

Mánudagur 26.des.:
Kvöld. Enn brunað af stað og nú í Stykkishólm með stuttri viðkomu á Selfossi að hirða upp fjölskyldumeðlimi og vini þeirra. Skítaveður og leiðindafærð og því ótrúlega gott að komast á leiðarenda.

Miðvikudagur 28. des.:
Og eina ferðina enn rauk ég af stað og nú til baka til Reykjavíkur eftir mjög svo dægilega daga í Hólminum.
Með Önnu Maríu frænku í leikhúsið að sjá Dóru frænku í Sölku Völku. Vá hvað hún var flott! Kíktum svo í kaffi til hennar á eftir.

Fimmtudagur 29. des.:
Eftir hressandi morgunsturtu... beint til Drífu Sig í brunch ásamt Þórunni Kvaran. Enn og aftur afskaplega notalegt hádegi.
Kokteill Frjálsrar verslunar á Sögu - menn ársins... ekki hægt að láta sig vanta þar.
Matur hjá Hrönn og Sigga. Tóta og Hjörtur komu þangað að spila. Tókum nett Trivial, nokkuð ljóst að maður er alveg kominn úr æfingu að spila.

Föstudagur 30. des.
Nett leti í gangi... loksins :) Fór ekki út úr húsi fyrr en seint og um síðir, kíkti í bæinn, skipti einhverjum jólagjöfum og endaði svo í kaffi með pottormum á Iðu.
Og þá var komið að djamminu í þessu jólafríi. Hitti Karíus bróður og fleiri úr vinnunni á Thorvaldsen, kíktum á Óliver, aftur á Thorvaldsen því það var svo mikil röð á Ölstofunni. Endaði svo, ásamt fyrrverandi landlordinum mínum í stuttu innliti hjá Jonna leigjanda sem er ekki leigjandi lengur heldur nýfluttur í voða flotta íbúð. Fannst þettas svo bara orðið ágætt og var komin heim um 3 leytið.

Laugardagur 31. des.:
Saumóbrunch hjá HG - hrikalega gaman.
Fleygði mér svo aðeins áður en ég skveraði mér í sparifötin og dreif mig ásamt Smára bróður til Helga bróður. Önnur ljúf og notaleg kvöldstund, flugeldar og fínerí. Þrátt fyrir að hafa fengið óteljandi heimboð, þar sem m.a. átti að kynna mig fyrir fráskyldum 4 barna föður, sem var náttúrulega ótrúlega freistandi, þá rölti ég nú bara aðeins yfir til fallegu mæðgnanna í Eskihliðinni og svo kom Smári og sótti mig og við fórum nú bara heim á Víðimelinn.

Sunnudagur 1. jan.:
Brunch hjá Önnu Maríu ásamt Dóru og Dunnu. Fengum spá í bolla, sem ég hef þegar minnst á og ætla því ekki að tíunda meira hér.
Til H bró og síðan með þeim í mat til Helgu frænku.

Mánudagur 2. jan.:
Allt búið :( Tími kominn til að pakka niður og fljúga aftur til London.

Þannig var það nú. Og þetta læt ég duga að sinni enda að geyspa sjálfa mig úr kjálkaliðunum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home