Thank god it's Tuesday
því dagurinn í gær var Mánudagurinn beint frá helvíti. Byrjaði á því að sofa yfir mig (því ég sofnaði ekki fyrr en rúmlega 3 kvöldið áður vegna kaffidrykkju eftir kvöldmat). Náði þ.a.l. ekki morgunsturtunni og heilinn hélt því áfram að sofa. Gleymdi lestarkortinu heima, keypti lestarmiða aðra leiðina í staðinn fyrir fram og til baka, gerði hverja gloríuna á fætur annarri í vinnunni - ætlaði t.d. að taka fundaherbergi af samstarfsmanni mínum í næstu viku fyrir fund sem verður ekki fyrr en í febrúar, ruglaði með flugferðir SE fram og til baka... endalaust rugl fram og til baka. Þannig að ég var nú bara komin uppí um hálf 11, las aðeins og gerði nokkrar Su Doku. Var því þokkalega spræk í morgun, komin undir sturtuna rétt rúmlega 7, mætt í vinnuna fyrir hálf 9 og er bara í góðum gír.
4 Comments:
Oj bara, þoli ekki svona daga! Greinilega eitthvað að ganga, því það fór allt á flot hjá mér í íbúðinni í gærkveldi, húsið að gefa sig undan snjóþunga :-(((
Nú á maður bara að búa á Hawaii, sitja úti í strápilsi og drekka görótta kokteila og horfa á strandblak.
Monopoly sem sagt strax komin með nóg af snjónum :)
Og aumingja konan hjá flugfélaginu gat ekki komið Londoníu í skilning um að Los Lobos væri ekki borg í Ameríku fyrr en upp úr hádegi þegar heilinn loksins rumskaði
Skrifa ummæli
<< Home