Leturstærð...
Ég var rétt búin að pósta síðustu færslu með smáu letri þegar ég mundi að þær voru nokkrar sem gátu ekki lesið á götuskilti nema draga upp lesgleraugun. Þannig að héðan í frá verður þetta blogg birt með Arial Normal letri en ekki Arial Small svo skvísurnar geti nú lesið þetta án þess að setja 1500 króna lesgleraugun á nefið.
Ekki það að mér fannst þið voða sætar með gleraugun að rýna í matseðlana... merkilegt hvað þeir eru alltaf prentaðir með smáu letri en það er nú kannski skiljanlegt - annars væru þeir eins og símaskráin sumir hverjir :-)
8 Comments:
en þú umhyggjusöm við okkur gömlu sjóndöpru. Takk fyrir það.
Hvernig var þetta aftur með kynlíf og sjónina - versnar hún ekki því meira sem kynlíf er stundað .....
Það gæti alveg verið eitthvað til í því... ég er t.d. með svo að segja 100% sjón og með þessu áframhaldi enda ég með röntgenaugu!
hahaha! Gaman að þú sért farin að blogga aftur, elsku systir :)
vei.. ertu farin ad blogga aftur.
Hvaða nafnlausa fólk er þetta sem er að kommenta á blogginu mínu? Lágmarks mannasiðir að kynna sig! ;-)
Sorry Ida. Eg gleymdi ad segja til nafns...
En eg a bara seinna nafnlausa kommentid.. ekki hid fyrra.
Skrifa ummæli
<< Home