Jæja...
mega blogg leti í gangi en það er líka búið að vera doldið mikið að gera hjá mér undanfarna mánuði, bæði ferðalög og gestagangur svona ofan á allt þetta venjulega, vinna-borða-sofa-faraígymmið og það allt. Ætli sé ekki best að rifja þetta svolítið skipulega upp allt saman (með dagbókina og dagatalið fyrir fram mig :-))
2. sept.
Kom frá Íslandi eftir 10 daga þar... gaggó reunion, afmælispartý, brúðkaup - nóg að gera í þeirri ferð. Gaggó reunion-ið var besta partý sem ég hef farið í í mörg mörg ár. Ótrúlegt hvað flestir halda sér vel og eru ennþá sætir og sjarmerandi, bæði stelpur og strákar.
4. sept.
Opnun á Texture, veitingastað í London sem er að hluta til íslenskur. Kynntist voða sætum James þar, fór á 2 deit með honum og síðan ekki söguna meir, hann lét sig hverfa. Leiðinlegt fyrir hann!
7. sept.
Delia til London
8. sept.
Tónleikar með Police í Twickenham - ég og Delia og það var sko ekki leiðinlegt.
13. sept.
Jón Ragnar, Naomi og Stefán Kei í heimsókn frá Tokyo - þau flugu svo áfram til Íslands 18. sept. Naomi kom svo til baka 23. sept og passaði íbúðina mína á meðan ég var í Dubai og Qatar.
25. sept.
Flaug til Dubai og Qatar í vinnuferð - kom til baka sunnud. 30. sept. Get ekki sagt að ég hafi verið yfir mig hrifin af þessum löndum. Hitastigið ca 45 gráður og álíka rakt og í gufubaði.
1. okt.
Naomi til Japan
2. okt
Helgi bróðir, Þórunn og Gígja frá Íslandi
3. okt.
Helgi bróðir, Þórunn og Gígja til Sviss
4. okt.
Ég í vinnuferð til Aþenu
8. okt.
Flaug frá Aþenu til Naxos í langþráð vikufrí. Gerði ekkert, ég endurtek... EKKERT í heila viku (var jú búin að blogga eitthvað smá um þá ferð)
14. okt.
Til baka frá Naxos til London
18. okt.
Máni frá Íslandi. Mikil hetja að fljúga einn en hann var nú hálf fölur greyið þegar ég tók á móti honum útá flugvelli!
19. okt.
Við Máni vorum aðallega í notallegheitum svona framan af degi, fengum okkur brunch á Balans og kíktum svo aðeins í Hamley's. Helgi, Þórunn og Gígja kom til London frá Belgíu seinni partinn.
Eyddum laugardeginum í Hyde Park og sunnudeginum í dýragarðinum. Máni fór svo heim á mánudeginum en H, Þ og G stoppuðu í heila viku.
26. okt
Helgi, Þórunn og Gígja til Íslands.
29. okt.
Fór á deit!
2. nóv.
Til Barcelona að hitta Drífu
4. nóv.
Til baka til London
5. nóv.
Komst að því að gaurinn sem ég fór á deit með f. viku síðan hafði alveg gleymt að segja mér að hann væri ekki bara giftur heldur ætti 3 börn! Það verður bið á að einhver fái símanúmerið mitt.
Hef haldið kyrru fyrir í London í nóvember eftir allt þetta flakk og gestagang. Hef þó svo sem ekkert hangið heima að lesa en þó tekið því frekar rólega. Eitt og eitt djamm inná milli eins og t.d. eitt föstudagskvöld með Dísu vinkonu sem var hér á World Travel Market. Verð að viðurkenna að kokteilarnir urðu aðeins of margir og laugardaguinn á eftir í samræmi við það! Líka djamm með liðinu úr vinnunni sem endaði á Coocoo club... ekki alveg my cup of tea en ágætt í góðra vina hópi.
Framundan er svo þokkalega erfið helgi þannig að það er eins gott að ég á ekki eftir að kaupa margar jólagjafir - litlar líkur á að ég verði í stuði til þess um næstu helgi eftir þessa dagskrá:
- Út að borða á fimmtudagskvöldið
- Jólaball vinnunnar á föstudagskvöldið
- Grímu-partý á laugardagskvöldið... þemað er Naughty og eftir töluverðar vangaveltur þá varð þessi skvísa fyrir valinu. Frekar lítið mál, ein hárkolla, gerfi augnahár og heavy augnmálning, gallabuxur og bolur.
En nú ætla ég að reyna að druslast til að setja inn eitthvað af myndum og kannski ég reyni líka að vera aðeins duglegri að blogga... lofa samt engu með það...
3 Comments:
bíddu, er bara unnið hjá ykkur milli 2 og 5 annan hvern mánudag ef hann lendir á oddatölu!? :)
talandi um að hafa nóg fyrir stafni....! en það er auðvitað bara skemmtilegt og alveg bráðnauðsynlegt að reka út nefið öðru hvoru svo ég tali ekki um að dreypa á eins og einu hvítvínsglasi :)
Nei elskan mín, kona vinnur amk 9 tíma á dag milli ferða og djamma og deita.
Frænka verð í London í næstu viku til að sjá West Ham - Liverpool frá þriðjud. - fimmtud. það væri nú gaman að sjá þig!
Skrifa ummæli
<< Home