Þjóðarsorg í Chelsea...
lá við að það mætti enn heyra snöktið og vælið í mönnum þegar ég labbaði í lestina í morgun. Ég verð nú að viðurkenna að ég horfði ekki einu sinni á leikinn heldur sat límd yfir The Apprentice sem er mun áhugaverðari en tuðruspark. Eina ástæðan til að horfa á fótbolta eru stinnir innanlærisvöðvar sparkaranna og síðustu ár hafa stuttbuxurnar síkkað svo mikið að það er ekki lengur hægt að kalla þær stuttbuxur - þetta eru hálfgerðar hnébuxur. Og ekki mega þeir lengur rífa sig úr að ofan til að fagna mörkum (ekki að það hafi gerst oft því það eru svo fá mörk skoruð í hverjum leik alla jafna) þannig að það er engin hvatning eftir til að horfa á þessa tilgangslausu íþrótt!
Löng helgi framundan hér í UK og hún verður ekki af verri endanum. Hvorki fleiri né færri en 8 skutlur frá Íslandi lenda hér í dag til að eyða helginni í tjútt og trall og hlátrasköll. Óeirðalögreglan er í startholunum og þegar hefur verið hafist handa við að rýma borgina! Annars hafa þessar elskur áhyggjur af því að missa af Eurovision! Hér hefur enginn áhuga á undankeppninni enda lenda Englendingar aldrei þar því þeir borga svo mikið til samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva. Andy Abraham keppir fyrir hönd Englands. Smá öskubuskusaga í orðsins fyllstu merkingu því áður en hann lenti í öðru sæti í X-Factor keppninni fyrir einu eða tveimur árum var hann öskukall. En ætli það verði sem sagt ekki endirinn að við stöllur horfum á undankeppnina á BBC3 eftir að hafa farið út að borða á Rocket, mjög svo huggulegan stað hér í Mayfair.
3 Comments:
Ahhh gott að sjá líf hér inni aftur.
Spurning hvort maður eigi að reyna að hemja sig í blogglestri og safna upp "frítíma" fyrir smá eurovisiongláp...það er stefnan.
Koss og knús frá Köben
hæ frænka
gaman að þú sért farin að blogga aftur!
ég var að hugsa um að horfa á júróvisjónið, en ég veit ekki hversu spennandi það er að horfa á það snemma dags, ekki beint sama stemning...
knús,
anna
allo, allo. Gaman að sjá að það eru fleiri en ég elska ekki fótbolta. Elsku vertu dugleg að blogga. Ég verð í bloggsíðulestri því ekki er sjónvarpið að trufla mig þessa dagana. Heyrði í útvarpinu að VIÐ erum komin áfram í Eurovision. Kannski ég troði mér í skemmtilegan hóp og sjá OKKAR fólk vinna.
Knús
Maja
Skrifa ummæli
<< Home