sunnudagur, janúar 29, 2006

Þessir Bretar

Ótrúlegt hvað er mikið um skandala í pólitíkinni hér og einhverra hluta vegna eru þeir allir hjá sama flokknum, Frjálslyndum demókrötum (ekki biðja mig að útskýra stefnu þeirra, Monopoloy er mun betur fallin til þess). Fyrst segir formaður flokksins af sér - fannst víst heldur gott að fá sér i staupinu og það þótti víst ekki gott að hann væri rorrandi fullur að greiða atkvæði um mikilvæg mál. Næst var það gifti gaurinn sem hélt við karlmann sem leggur stund á elstu atvinnugrein í heimi. Og ekki var því lokið því núna í vikunni þá kom formannsefnið út úr skápnum sem tvíkynhneigður. Veit ekki af hverju hann hafði verið með einhverjar yfirlýsingar fyrir einhverju síðan um að hann væri EKKI samkynhneigður - einhverjar grunsemdir hafa verið um það greinilega. Og nú er allt vitlaust, ekki af því maðurinn er bæ heldur af því hann laug!
Og The Times heldur að ekki sé öllu lokið enn... einhver orðrómur hefur verið um að enn einn Lib Dem gaur hafi ekki alveg hreina samvisku í framhjáhaldsdeildinni.
Nú svo er Celebrity Big Brother loksins lokið. Fyrir þá sem ekki vita þá er Big Brother raunveruleikasjónvarp
http://www.channel4.com/bigbrother/ þar sem hópur af fólki þarf að búa saman í 3-4 vikur. Og ekki bara búa saman, þau eru undir sama þaki 24/7. Og auðvitað þurfti celebrity útgáfu af þessu líka... fyrir 'fræga' fólkið. 'Fræga' fólkið er 'has been' lið sem er að reyna að komast aftur á síður slúðurblaðana. En tvistið núna var að ein í hópnum var alls ekkert fræg, hefur unnið sem Paris Hilton lookalike og eitthvað álíka spennandi. Og stúlkukindin bara vann dæmið, frekar skemmtilegt, non celebrity vann Celebrity Big Brother.
Nú, svo hafa hinar ýmsu skoðanakannanir leitt ýmislegt í ljós um breska þjóðarsál. Samkvæmt þessu þá geta þeir verið uppátækjasamir í einkalífinu þannig að það er spurning um að reyna að blikka þessa bresku http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1181211 þó að fram að þessu hafi þeir ekki fengið sérlega góða dóma hjá þeim sem ég þekki og þekkja betur til þeirra en ég!
Deitið í gær var svona lala... ekki spennt, frekar lummó þessi þjóðverji sem heldur að hálskirtlahreinsun sé the way to go! Eða ég ímynda mér það miðað við tilburðina þegar hann reyndi að kyssa mig!! Held ég sleppi fleiri deitum með honum!
En þetta var fínn sunnudagur, langt símtal við Tótu - tími til kominn að einhver slái á þráðinn!! Mætti stundum halda að það væri bara hægt að hringja frá Bretlandi til Íslands ;) Smá svona kvart. Fór svo í Tate Modern að hitta tvær úr vinnunni heima, borðaði með þeim á All-Bar-One niðri við á og er nýkomin heim. Ætla að vera skynsöm í kvöld og koma mér í bælið fyrir miðnætti svo ég endi ekki jafn þreytt næsta föstudag eins og ég var í fyrradag.

1 Comments:

At 30 janúar, 2006 16:12, Anonymous Nafnlaus said...

Djöfulli sakna ég big brother þáttanna, þeir eru svo sjúklega lélegir að það var æðislegt að kíkja á þá öðru hvoru.
hlakka til að detta á balance með þér og taka tvo til þrjá prosecco

h

 

Skrifa ummæli

<< Home