Leti helgi
svo vægt sé til orða tekið. Fékk sjónvarpið úr viðgerð á föstudaginn - hefði sennilega getað gert við það sjálf, bara eitthvað sem var dottið úr sambandi. Allavega, tók gott sófakvöld fyrir framan tv-ið. Byrjaði að horfa á Pride & Prejudice sjónvarpsseríuna sem ég fékk gefins... algjör snilld og það verður að segjast að Colin Firth sem Mr. Darcy er BARA sexy, jafn fúll og leiðinlegur og hann er í þáttunum. Bíð spennt eftir blaut-skyrtu-atriðinu :þ
Gærdagurinn var svo eiginlega líka í rólegheitum, Anti-Heart-Attack morgunverður á Troubadour sem er að verða uppáhalds morgunverðarstaðurinn minn, las laugardags Tímann, kláraði Samurai Su Doku gátuna en komst ekkert áfram með Shogun Su Doku gátuna - hún er 11 föld og pínu snúin. Ætlaði svo í bíó en það varð ekkert af því. Skrapp hins vegar aðeins á pöbbinn, átti bara að vera eitt hvítvínsglas en fór að spjalla við e-n Þjóðverja og endaði í 4 hvítvínsglösum á 3 pöbbum, kebab úti á horni og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar maðurinn fór að ýja að því að koma með mér heim í kaffisopa þá kvaddi ég pent og kom mér heim. Samþykkti að hitta hann í kaffi í dag en guggnaði á því... en aldrei að vita nema ég hitti hann síðar. Fanns hann samt heldur ákafur... á þriðja bjór reyndi hann að kyssa mig og halda í hendina á mér... soldið desperate eitthvað
4 Comments:
Hefur Londonía eitthvað leitt hugann að því að kannski hafi maðurinn bara fallið kylliflatur fyrir henni? Ástin í lífi hans?
Nei, satt best að segja hvarflaði það ekki að mér enda hef ég litla trú á ást við fyrstu sýn. Held að greyið hafi bara verið að drepast úr greddu enda hafði deitið hans gefist upp á að bíða eftir honum eftir 20 mín þannig að hann missti af laugardagsdrættinum :)
Nú situr mann greyið heima hjá sér og skælir í koddann og hámar í sig ís og súkkulaði og semur ljóð á tárvotar servíettur um ást í meinum og um stúlkuna sem kom til hans eins og engill en hvarf jafn skjótt aftur og skildi hann eftir með brostið hjarta!
Ég ætla bara rétt að vona það!
Skrifa ummæli
<< Home