Hefði aldrei trúað því að ég gæti orðið svona heilluð af nokkurri borg en ég er algjörlega fallin fyrir þessari borg og á örugglega eftir að koma hingað oft og mörgum sinnum :) Þrátt fyrir talsverðan hita og töluverðan raka (vaknaði þrisvar í nótt, kófsveitt og klístruð) þá skyggir það ekki á, síður en svo.
Þetta erum við búnar að gera:
Þramma um Soho og Greenwich Village
Fyrir yfir í Brooklyn til að sjá Lower Manhattan úr fjarlægð og fá okkur brunch
Labba Brooklyn brúnna til baka í steikjandi hita og sól
Versla slatta ;)
Borða brunch á frönsku brasserie-i
Borða kvöldmat á Rosa Mexicano þar sem ég fékk það besta guacamole sem ég hef smakkað
Borða á filipeyskum stað sem innfæddur New York Filipseyingur mælti með
Borða á tælenskum stað sem minnir svolítið á Patara í London
Fá okkur drykk á Coyote Ugly bar þar sem barstúlkan dansaði uppá borði og veggirnir voru skreyttir með brjóstahöldurum
Drekka slatta af hvítvíni, bjór og kampavíni
Í dag er stefnan tekin á MOMA (Museum of Modern Art) sem mér skilst að sé mikið skemmtilegt safn, labba í Central Park og örugglega eitthvað fleira. En nú er fyrst á dagskrá að fara eitthvað og fá sér brunch. Á morgun er það svo rise and shine á ókristilegum tíma því við þurfum að vakna kl. 5 í fyrramálið til að ná flugi kl. 8 til Bahamas :)