Þögnin rofin
Þetta blogg hér fyrir neðan var skrifað 23. september og ég gleymdi að birta það :) Held það sé varla hægt að vera verri bloggari!! En kannski bara tilvalið að nota það til að byrja aftur að bulla
Title: Síðasta bloggið í dalnum
Jæja... alltaf í boltanum? Ég er sennilega versti bloggari sem fyrirfinnst og þ.a.l. held ég að ætti bara að hætta þessari vitleysu! Eða hvað? Kannski ég taki smá skorpu, svona rétt til að rifja upp hvað hefur á daga mína drifið að undanförnu.
17.-22. ágúst
Delia og Lilja í heimsókn:
Grill til Katrínar í Potters Barn í N-London. Ekkert smá notalegt, hún er þvílíkur höfðingi heim að sækja að það hálfa væri alveg passlegt. Þvílík veisla... mmmmm...
Rolling Stones tónleikar - grúppa sem maður verður að sjá læv amk einu sinni um ævina og ég
