Og eina ferðina enn eru það víkingarnir...
Þeir eru svoooo ófrumlegir í fjölmiðlunum hérna að það hálfa væri alveg passlegt. Reyndar er The Independent skömminni skárri í sinni grein í gær en ég hefði nú ekki trúað því uppá BBC væri enn fast í víkingatímanum. Og það þýðir ekkert að reyna að sannfæra þessa blessuðu Englendinga um að fyrstu Íslendingarnir hafi alls ekki verið víkingar heldur skattpíndir bændur frá Noregi - þeir trúa því ekki. Og heldur ekki því að allar fallegu konurnar frá Englandi hafi verið þreyttar á durgskap þar í landi og skellt sér í siglingu með glæsilegum norskum bændum, siglingu sem endaði á Íslandi :-)
En ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef hvoruga greinina lesið til enda. En er óskaplega stolt af að vinna hjá 'boutique investment bank' sem útvegar fólki lán til að kaupa snekkjur, flugvélar og hús :-)
1 Comments:
Takk fyrir ahugaverdar upplysingar
Skrifa ummæli
<< Home