Sumarfríið í stórum dráttum
29. júní - 4. júlí New York.
Vá hvað það er geggjuð borg, full af lífi, orku, hávaða, fallegu fólki, skrýtnu fólki, ljótu fólki, skemmtilegu fólki, leiðinlegu fólki.
4.-12. júlí Bahamas.
Dásamlegur staður, yndislegt fólk, afslappað, heitt, rakt, góður matur, vondur matur, höfrungar, jet-ski, flottir strákar...
13.-14. júlí New York aftur.
Heitt, heitt, heitt... Hefði getað lent á sjéns með amerísk-írskum lögreglumanni en lét það vera (Ms Prim&Proper smyglaði sér sem sagt með í þetta sumarfrí :( og hékk í mér eins og bráðnað tyggjó á gangstétt)
15. - 30. júlí Ísland.
Stykkishólmur - Seyðisfjörður - Þórshöfn á Langanesi - Reykjavík. Þannig var rúnturinn í þetta skiptið. Frábært að koma úr hávaðanum í New York í þögnina í Hólminum, hægt að heyra manninn í þarnæstu götu negla með hamrinum sínum. Og á Seyðisfirði kæfði þokan flest hljóð þannig að það var ennþá meiri þögn. Og á Þórshöfn var líka þögn, fyrir utan malið í ættingjum mínum sem söfnuðust saman þessa helgi og drukku, átu, syntu í sjó, fóru í kirkju, dorguðu, sungu og skemmtu sér. Og síðast en ekki síst ber að nefna sjóbaðið sem helstu hetjur fjölskyldunnar tóku þátt í. Ber þar helst að nefna undirritaða ásamt 7 ára bróðursyni. Ekki hef ég sönnun fyrir mínu eigin sjóbaði en Máninn minn var hetja dagsins, ekki aðeins stakk hann sér til sunds í ísköldum sjónum heldur vann hann líka til verðlauna í dorgveiðikeppni ættarmótsins, veiddi minnsta en jafnframt óvenjulegasta og flottasta fiskinn.
Myndir væntanlegar fljótlega
Nú og síðan ég kom til London hefur tíminn að mestu farið í (fyrir utan vinnu) þvotta, tiltekt, frágang (ótrúlega mikið af smádóti og drasli sem kemur uppúr ferðatöskunum), leti, leti og leti. Eyddi t.d. gærdeginum flatmagandi í garðinum mínum með sunnudagsblaðið, slatta af SuDoku gátum, mp3 spilarann minn og gemsann og náði 5 tímum án þess að leiðast hið minnsta.
Svo er lífið smám saman að komast í fastar skorður, heitt og sveitt í lestinni á morgnana, ískalt í vinnunni, heitt og sveitt í lestinni á leiðinni heim... ekki farin að mæta í ræktina ennþá en geri það í vikunni... eldaði mat í gærkvöldi sem er alveg saga til næsta bæjar... alveg látið eiga sig að hafa samband við franska kokkinn sem kallar mig 'baby' í öðru hverju orði í sms-unum... en geri það nú fljótlega til að reyna að koma því inní hausinn á honum að ég sé ekki 'his baby'!!!!
En nú ætla ég að reyna að vinna örlítið...
tjaó beibs ;-)
4 Comments:
Já svona á maður að eyða fríinu, eitthvað fjölbreytt og skemmtilegt (sem t.d 3 vikur á skítugri strönd á Benedorm er örugglega ekki án þess þó að ég hafi kynnt mér það persónulega og hafi ekki í hyggju að gera í þessu lífi):)
En come on, maður lætur sig nú hafa það að láta einhvern kalla sig baby ef sá hinn sami eldar handa manni dýrindis máltíðir og splæsir góðu víni með!
Það er málið... hann er ekki farinn að elda handa mér ennþá en færði mér reyndar flösku af Moët kampavíni í gær :) Spurning um að gefa honum sjéns á að elda eitthvað gott þó að leiðin að mínu hjarta hafi fram til þessa ekki legið gegnum magann!
Franskur matur getur örugglega haldið þér við efnið í nokkrar vikur. Annars er barinn þinn orðinn ansi fjölþjóðlegur - romm, kampavín, hvað næst?
o það er sko af nógu að taka... ástralskt rauðvín, hollenskur bjór, enskt gin, skoskt eða írskt viský... need I go on ;-)
Skrifa ummæli
<< Home