Skattadagurinn í UK
Heyrði í útvarpinu áðan að í dag er dagurinn sem tekjurnar eru okkar og fara ekki í skattinn. Það er að segja, það tekur 5 mánuði og 2 daga að vinna fyrir skattinum hér í Bretlandi. Man ekki hvaða dagur þetta var á Íslandi en einhvern veginn minnir mig að það hafi tekið töluvert lengri tíma að vinna fyrir skattmann á Íslandi!

7 Comments:
Held þetta sé svipað hér. En come on, það þarf nú að byggja göng!
Og kaupa herskip fyrir LandhelgisGÆZLUNA.
Var Londonía tekin upp í skattaskuld?
Held það barasta bara, eða er bráðnuð niður í London, þar er nebbblilega sumar.
Hvað er þetta... kona er náttúrulega gasalega upptekin við að bera á sig sólarvörn milli þess sem hún svolgrar í sig bjór með organdi fótboltabullum með bjórvömb og væskilslegum tuðruheilum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa meira vit á fótbolta en allir dómarar keppninnar til samans og voru líka allir upprennandi boltastjörnur í æsku en þurftu að hætta vegna íþróttameiðslahnjasks!
Ég hef verid ad pæla mikid í íslenskum skattamálum. Hérna í Danmörku fá allir námsmenn svokallad SU..tad er 45.000 kall á mánudi eftir skatt, sem teir fá frá ríkinu gefins, svo fer madur ókeypis til læknis og fl. Hvert fara peningarnir á íslandi - fara teir í vegavinnu eda?
Ætli það geti verið að fjöldi landsmanna skipti einhverju máli og sú staðreynd að Danir greiða miklu hærri skatta en Íslendingar?
Skrifa ummæli
<< Home