fimmtudagur, desember 28, 2006

Jólajólajólafrí

Það er ekkert smá ljúft að vera í fríi... það ættu allir að prófa það, helst nokkrum sinnum á ári :-) Dagskráin fram að þessu hefur verið í slakara lagi, 2 dagar í Reykjavík sem fóru í að hitta vini og ættingja - fór meira að segja hitta gamla skólafélaga úr MH í tilefni þess að x mörg ár eru liðin síðan við kvöddum þá mætu stofnun með hvítar húfur á kollinum. Á Þorláksmessu (þeirri fyrstu skötulausu í mörg herrans ár) lægði vind þannig að hægt var að fljúga á Egilsstaði þar sem Þórunn mágkona mín tók á móti mér. Þar sem taskan mín kom ekki fyrr en með næstu vél á eftir (allt mjög afslappað og ekki miklar áhyggjur sem þarf að hafa af öryggismálum í innanlandsflugi á Íslandi :-)) sem kom ekki fyrr en tæpum klukkutíma síðar þá skelltum við okkur á Hamborgarabúlluna en eins og kunnugt er þá rekur Tommi í Tommaborgurum tvær slíkar búllur, eina í Reykjavík og aðra á Egilsstöðum. Var búin að panta mér venjulega hammara þegar ég kom auga á uppáhaldið mitt af matseðlinum í den, UbbaDubba samloku... prófa hana næst þegar ég verð á ferðinni á Austurlandi.

Jólunum eyddi ég sem sagt á Seyðisfirði í faðmi fjallanna og litlu fjölskyldunnar þar. Við systkinin elduðum okkur rjúpur og þær tókust bara ansi vel og ég verð að segja að hann bróðir minn er mikill snillingur í sósugerð. Máni kom svo á annan í jólum með köttinn Klæng í farteskinu. Sá var ekki alveg á því að láta flytja sig svona milli landshluta og stakk af við fyrsta tækifæri - vona að hann sé kominn í leitirnar því drengurinn var verulega áhyggjufullur. En við eyddum sem sagt dögunum við lestur og spil milli þess sem við nörtuðum í alls kyns góðgæti eins og siður er á jólum.

Í gær flaug ég svo í bæinn, hvar beið mín þessi fíni bílaleigubíll á góðu verði - takk Siggi :-) - og brunaði sem leið lá í Hólminn til að kíkja aðeins á fjölskylduna mína þar. Alveg merkilegt hvað fólkið mitt þarf að dreifa sér um allt land :-) Hér verð ég væntanlega þar til seinni partinn á morgun - þá kem ég aftur í bæinn. Dagskráin næstu daga í bænum er ekki alveg komin á hreint þannig að þeir sem hafa brennandi áhuga á að líta mitt fagra smetti ættu endilega að láta mig vita, t.d. með tölvupósti á vinnunetfangið mitt eða með sms. Ég flýg út aftur 2. janúar með eftirmiðdagsvélinni þannig að það er ekki um marga daga að ræða.

5 Comments:

At 01 janúar, 2007 17:33, Anonymous Nafnlaus said...

hmmmm þú gleymdir einu á meðan þú stoppaðir.....

 
At 02 janúar, 2007 23:57, Blogger Londonia said...

hugsi hugsi hugs... hverju gleymdi ég???

 
At 06 janúar, 2007 23:43, Anonymous Nafnlaus said...

Hvað gæti það verið.....

 
At 07 janúar, 2007 20:30, Blogger Londonia said...

Ahhh.... þessi Tóta :-) Ég kom í nudd en þú varst bara farin norður!

 
At 07 janúar, 2007 22:06, Anonymous Nafnlaus said...

SORRY! hvað var ég að spá!

 

Skrifa ummæli

<< Home