þriðjudagur, janúar 16, 2007

Vor í janúar!! Eða hvað


Ég byrjaði á þessari færslu fyrir rúmri viku síðan - þá var hitastigið hér búið að vera í kringum 10 gráður allan mánuðinn og talað um heitasta janúar síðan mælingar hófust. Og þó að stormar hafi gengið yfir með tilheyrandi umferðartöfum og látum þá var hálfgert janúar-vor. En veðurguðirnir hafa ákveðið að sleppa Bretlandi ekki alveg við veturinn. Og í morgun hafði sem sagt snjóað!! Yfirleitt festir ekki snjó í miðborg Lundúna þar sem borgin sjálf gefur frá sér svo mikinn hita að snjórinn bráðnar áður en hann fellur til jarðar. En ekki í nótt. Í fyrsta skipti síðan á flutti hingað fyrir tæpum 3 árum síðan var snjór á götum og bílum þegar ég kom út í morgun! Og að sjálfsögðu ríkir algjört kaos um alla borg, umferðar- og samgöngufréttirnar voru lengri en fréttatíminn í morgun, seinkun á næstum öllum línum í Undergroundinu - já, þeim seinkar líka þegar veðrið er vont því stór hluti er ekki neðanjarðar - slys á öðru hverju götuhorni, fljúgandi hálka og ég veit ekki hvað og hvað! Það er sem sagt ca 3cm jafnfallinn snjór! Svo er fussar landsbyggðarfólkið á Íslandi yfir vælinu í Reykvíkingum þegar snjóar!! Spáin er samt ekki svo slæm þó það verði pínu kalt - og athugið að ca 4 stiga hiti hér er eins og frostmark heima á Íslandi, jafnvel kaldara ef það er ekki logn. Alveg merkilegt, hvað það getur verið kalt þó að það sé yfir frostmarki.
En nóg um veðrið... Er að fá pabba og hans ágætu konu í heimsókn, þau koma í kvöld og ætla að vera fram á sunnudagskvöld. Það var alveg tími til kominn - gamli aldrei búinn að heimsækja frumburðinn sinn til London, það var náttúrulega til háborinnar skammar ;-) Þannig að framundan eru skemmtileg kvöld á góðum veitingastöðum og leikhúsferð á laugardagskvöldið.
Annars er bara fínt að frétta, árið byrjar bara nokkuð vel hjá mér, nett sjénsastand í gangi en ég ætla ekki að fara nánar út í það hér á öldum netsins (sbr. öldum ljósvakans :-)) - þau ykkar sem vilja nánari upplýsingar um það verða að hafa samband við mig persónulega ;-) Kílóunum fækkar smátt og smátt þrátt fyrir að ég sé nú ekki að mæta neitt sérstaklega oft í ræktina - sæti þjálfarinn minn hann Antonio hefur greinilega svona góð áhrif. Mæli sko alveg með því við allar konur að fá sér sætan einkaþjálfara, svakalega hvetjandi ;-)
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili - best að reyna að vinna fyrir laununum sínum...