Ekki étin af krókódílum...
Komin til baka frá S-Afríku eftir frábæra ferð sem því miður var of stutt. Langar aftur en það er nú kannski oft þannig þegar maður kemur heim eftir gott ferðalag. Einu vonbrigðin kannski að Sun City, hvar við vorum fyrstu 4 dagana, er eiginlega afrískt Las Vegas og lítið afrískt þar í gangi. Til dæmis var ekki hægt að finna einn einasta afrískan veitingastað og afrísk tónlist heyrðist ekki. Á hótelinu okkar var t.d. portúgalskt þema á aðal veitingastaðnum! En þetta var góð slökun og hvíld sem er jú m.a. tilgangurinn. En það er kannski svolítið langt að fljúga í 11 klukkutíma til að liggja á sundlaugarbakka sem gæti allt eins verið á Mallorca... fyrir utan kannski skiltið á sundlaugarbakkanum "Don't feed the Monkeys". Skoðuðum krókódílagarð á mánudaginn - skrýtin dýr... krókódílar. Og til í öllum stærðum, small, medium, large og X-large! Og þeir eru líka góðir á bragðið :-)
Þriðjudagurinn var í rólegheitum, gönguferð um svæðið, m.a. niður á tilbúnu ströndina hjá hótelinu okkar! Og á miðvikudaginn vorum við svo sóttar og keyrðar á Mount Grace þar sem Delia þurfti að sitja fundi á fimmtudeginum og föstudagsmorgninum. Ég hins vegar þurfti þess ekki og náði að fara á safn um uppruna mannsins 'Cradle of Mankind' og skoða dropasteinshelli 'Wonder Cave'
Og almáttugur hvað það er erfitt að sofa í flugvél, þó maður sé drulluþreyttur og syfjaður! Ég náði ca 4-5 tímum (ekki samfleitt) á leiðinni til Afríku og þessir tímar sem ég var vakandi þá mátti ég gjöra svo vel að sitja í myrkrinu og stara út í loftið því að ekki nóg með að sjónvarpið virkaði ekki hjá mér heldur virkuðu ekki takkarnir í sætinu mínu heldur og þ.a.l. gat ég ekki kveikt ljósið svo ég gæti í það minnsta haft ofan af fyrir sjálfri mér með því að lesa eða gera SuDoku. Og í nótt náði ég alveg heilum klukkutíma í svefn. Horfði á næstum því 4 bíómyndir - fyrst afríska mynd 'The Boy with the Wooden Camera', fín mynd - síðan Happy Feet teiknimyndina - byrjaði svo á Flushed Away teiknimyndinni en kláraði hana ekki. Tók svo The Prestige í restina en að sjálfsögðu náði ég ekki endinum, ætli hafi ekki verið ca 5 mínútur eftir af henni þegar slökkt var á sjónvarpskerfinu fyrir lendingu :( En eftir 11 klukkutíma flug og þar af 1 klukkutíma í svefn, þá er óhætt að segja að kona hafi verið hálf slæpt og alls ekki í sínu besta formi. Delia kom með mér heim, við skelltum okkur í sturtu til að skola af okkur ferðarykið og röltum svo yfir á Balans í morgunmat. Hún tók svo lestina aftur út á flugvöll til að ná hádegisvélinni heim til Íslands. Ég aftur á móti skreið uppí um leið og hún fór og hef sennilega verið sofnuð áður en hún var komin út á brautarstöð. Svaf til 1, druslaðist þá framúr og hef eytt deginum í að þvo og ganga frá eftir ferðina. Eftir stressið við að pakka niður og allt sem ég gleymdi þá ætla ég að koma mér upp ferðakitti til að hafa tilbúið með því nauðsynlegasta til að hafa a) í flugvélinni og b) í snyrtitöskunni - skil eiginlega ekkert í mér að hafa ekki gert það fyrir löngu.
1 Comments:
öfunda þig nákvæmlega ekki neitt fyir að hafa farið þetta! alveg eins og ég veit upp á hár um hvað Grey´s anatomy fjallar (þ.e.s sjónvarpssápan ekki kennslubókin), hvað Lindsy Lohan var að gera um síðustu helgi og hver á eftir að vinna júróvisjón!!
Skrifa ummæli
<< Home