miðvikudagur, september 19, 2007

Barátta kynjanna...

Það stefnir allt í óefni í heiminum því einhverra hluta vegna fjölgar karlmönnum hraðar en konum amk í sumum heimshlutum. Þannig er hlutfallið sums staðar í Kína, Indlandi og nokkrum Asíulöndum 120 karlar á móti hverjum 100 konum. Þannig að það er gríðarlegt úrval af einhleypum körlum á aldrinum 15-35 ára. Spurning hvort maður eigi að skreppa í langt frí á þessar slóðir!
Eina er að það fylgja þessu ýmis vandamál og þau ekki skemmtileg: ofdrykkja og ofbeldi. Þannig að það er ljóst að ungir karlmenn með brundfyllisgremju eru stórhættulegir, sjálfum sér og öðrum! Alveg merkilegt hvað náttúruleg þróun á þessari tegund gengur voðalega hægt... spurning hvort það er ekki hægt að flýta fyrir henni á einhvern hátt þannig að þeir geti verið eins og manneskjur án þess að fá'ðað reglulega - rétt eins og konur hafa verið frá örófi alda!
Lesa frétt