þriðjudagur, júlí 24, 2007

Ég er á lífi...

þó bloggleysi gæti bent til annars. Alveg merkilegt hvað ég get verið löt við þetta, þó það sé ýmislegt í gangi, bæði hjá mér og ég tala nú ekki um í bresku samfélagi. Blair sestur í helgan stein og ný ríkisstjórn tekin við, Posh og Becks flutt til Ammríku, veðurfarið eins og það gerist skemmtilegast á Íslandi á sumrin (eða þannig), Boris Johnson ætlar að bjóða sig fram til borgarstjóra í London... maðurinn sem torýarnir ráku úr embætti 'shadow arts minister'. Og nú segir David Cameron, foringi flokksins, að það sé ekki hans að velja borgarstjóraefni flokksins, það sé borgarbúa að gera það!! Ég myndi ekki treysta David Cameron fyrir horn! Nú ætlar hann að borga fólki £20 á viku fyrir að vera í hjónabandi!! Hvers eigum við að gjalda sem eigum hvorki maka né börn... þetta kallar maður nú misrétti í meira lagi. Nú svo er landið meira og minna á floti og liggur við að maður reyni að hafa uppá einhverjum sem hafa reynslu af því að smíða stórar arkir... þekki ekki hvort Nói gamli skildi eftir sig einhverjar teikningar eða verklýsingar.

En nóg um Bretland. Það er orðið svo langt síðan ég bloggaði síðast að það er varla að ég muni allt sem ég hef gert síðan. Talsverður gestagangur í maí og júní, þrjár Íslandsferðir, vinna-borða-sofa-pakkinn, mæta í ræktina annað slagið, bölva því að vera ekki búin að plana neitt frí annað en til Íslands.

En ferðirnar til Íslands voru nú allar af einhverju skemmtilegu tilefni.
Sú fyrsta, í maí, var í tilefni af fimmtugsafmæli eins pottormsins, voða gaman að koma liðinu á óvart. Einbeitti mér að fjölskyldunni í þessari ferð, sótti Mánalinginn og eyddi laugardeginum með ættingjunum sem fylktu liði og mættu í Einilundinn í blíðskapar veðri.
Næsta ferð, í byrjun júní var smá svona aksjón ferð. Skrapp í Önundarfjörðinn í góðra vina hópi, aftur í blíðskaparveðri. Sundferðir, kajakferð, grillveisla og gaman.
Þriðja og síðasta ferðin í bili var jafnframt sú lengsta. Byrjaði á að mæta í fertugsafmæli hjá Þórarni frænda, mikið fjör og mikið gaman. Skrapp svo í sveitina til Helga bróður - algjört afslappelsi og sæla. Nokkrir dagar í bænum og svo var það Hveragerði, Aratunga, Stykkishólmur, Reykjavík, nokkurn veginn í þessari röð. Ég þóttist svo ætla að taka góða veðrið með mér út en það tókst því miður ekki. Þetta mætti nú alveg fara að breytast, svona áður en bróðurpartur landsins flýtur á haf út. Það er allavega ljóst að ekki er von á því að vökvunarbann verði sett þetta sumarið.
Framundan er svo smá gestagangur, Sossa frænka og Guðrún Anna vinkona ætla að vera hér um verslunarmannahelgina, Prince tónleikar og jafnvel fótboltaleikur (Chelsea-Man Utd á Wembley) í boði þá helgi. Ljósmyndanámskeið helgina 18/19 ágúst og svo kem ég heim 21. ágúst til að mæta í 25 ára Hlíðaskólaendurfundapartý og brúðkaup 1. sept. Ætla í millitíðinni að vinna á skrifstofunni á Íslandi. Þannig að ég verð sem sagt heima frá 22. ágúst (þá hefði mamma orðið sextug) til 2. sept.
En hver veit nema ég fari að vera aðeins duglegri að blogga um daglegt líf í UK - aldrei að vita. En það væri nú líka ágætt að fá smá viðbrögð við þessu bulli mínu - held að eina manneskjan sem enn tékkar á því hvort ég blogga sé Monopoly vinkona mín, sem gefst ekki upp á mér :-)

7 Comments:

At 25 júlí, 2007 12:17, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ Ída mín. Bara að kasta smá kveðju á þig frá heimsförunum, spurning að við hittumst bara á Íslandi í ágúst.

Hafðu það gott
Jórunn og co.

 
At 26 júlí, 2007 00:31, Anonymous Nafnlaus said...

Endilega að blogga meira, vantar alveg einhverja "vitlega" umræðu um t.d. bresku konungsfjölskylduna, Posh og Becks svo ég tali nú ekki um Boris, sem er svo ótrúlegur að Lundúnar búar eru alveg vísir með að kjósa.

 
At 26 júlí, 2007 00:31, Anonymous Nafnlaus said...

Monopoly var með þessa athugasemdi, ætlaði nú ekki að gerast nafnlaus eins og hver annar dóni !!!!!!!!!!!

 
At 28 júlí, 2007 00:56, Anonymous Nafnlaus said...

heyrðu, ekki gleyma aðal fréttinni...Spice Girls komnar saman aftur og Posh Spice aldrei litið renglulegri út, svona um það bil eins og hún hafi ekki fengið að borða síðan 2003!!!

 
At 31 júlí, 2007 08:31, Anonymous Nafnlaus said...

vildi bara láta vita af mér. Ég er alltaf á ferðinni hérna

 
At 16 ágúst, 2007 14:09, Anonymous Nafnlaus said...

ég fylgist alltaf með ída og vil fá fleiri fréttir. Guja

 
At 16 ágúst, 2007 14:09, Anonymous Nafnlaus said...

ég fylgist alltaf með ída og vil fá fleiri fréttir. Guja

 

Skrifa ummæli

<< Home