fimmtudagur, maí 10, 2007

Brjóstastækkun!!

Þar kom að því... haldiði að ég hafi ekki bara skellt mér í brjóstastækkun í morgun! Þið eruð hissa já! Ég er ekki hissa á því, hefði aldrei dottið í hug að ég ætti þetta eftir. En ég sem sagt fór á einu bretti úr stærð 40B í 36D :-) Svona geta nú mælingarnar hjá kellunum í M&S klikkað sem sögðu hér um árið að ég væri 40B, jafnvel 40C. Ég mátaði 40C og það bergmálaði í skálunum - hef alltaf staðið í þeirri meiningu að ég væri með frekar lítil brjóst og rétt slefaði í B skálar. En heldur betur ekki! Hef lengi ætlað mér að fara í alvöru mælingu og skellti mér loksins í morgun hjá Ribgy & Peller og þetta var niðurstaðan. Mæli með þeim. Og nú get ég farið að kaupa mér fína sæta brjóstahaldara því það er mun meira úrval til í stærð 36D heldur en 40B :-D

7 Comments:

At 19 maí, 2007 15:23, Anonymous Nafnlaus said...

er hægt að tala við þetta fólk ef mann langar að passa í númeri minni gallabuxur :D

 
At 21 maí, 2007 10:59, Blogger Londonia said...

Heyrðu það væri náttúrulega bara snilld... ég þarf að kanna það

 
At 22 maí, 2007 10:36, Anonymous Nafnlaus said...

Grumpa hringdi í mig í gær, í sjokki yfir að þekkja einhvern sem hefur farið í brjóstastækkun. Þurfti að borða 14 trufflur, 8 súkkulaðistykki og drekka glas af sherry með til að jafna sig á þessum ótíðindum. Hver hefði trúað því fyrir 10 árum síðan að hippinn Londonía færi í brjóstastækkun!!!!!

 
At 22 maí, 2007 11:24, Blogger Londonia said...

Svona breytast nú tímarnir og mennirnir (og konurnar) með. Stórborgarlífið hefur greinilega meiri áhrif en ég hafði gert mér grein fyrir. Enda sjálfsagt strekt á alla kanta, fitusogin, strokin og slípuð. Eða ekki! Ef þetta væri allt saman hægt án stórhættulegra skurðaðgerða og tryggt að kona endaði ekki eins og hún væri búin til úr plasti með varirnar niðrá höku með hökutopp og augun uppá enni, þá mætti kannski athuga málið en þangað til... nei takk.

 
At 22 maí, 2007 22:49, Anonymous Nafnlaus said...

Það voru 4 glös af sherry og smá dreitill af koníaki og minna mátti það ekki vera

 
At 25 maí, 2007 14:37, Blogger Londonia said...

Ég var aðeins að velta þessu fyrir mér með gallabuxurnar. Væri ekki geggjað ef maður færi í svona mælingu og kæmist að því að maður þyrfti minna númer og lengri skálmar :-)

 
At 27 maí, 2007 10:37, Anonymous Nafnlaus said...

Er þetta eitthvað sem er að ganga í fjölskyldunni??? Fór nebbla að versla mér haldara um daginn og ætlaði nú bara að versla mér mína venjulegu stærð, 34D, en afgreiðslustúlkan lagði til að ég mátaði nú 32E!!! Ég hélt nú ekki..væri nú ekki með brjóst sem pössuðu í E-skálar...en viti menn þvílíkur munur, til hins betra. Ég mæli eindregið með að leita aðstoðar fagmanna til þess að fá að vita hvað maður er með stór brjóst. Lifi nærfataverslanaaðstoðarfólk!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home