Ég vil fá mér kærasta...
sbr. hið ágæta lag með Hjálmum. Þetta horfir til vandræða, þetta karlmannsleysi á mér. Nú er mig farið að dreyma einkaþjálfarann minn á nóttunni og það þó að ég sé emjandi af harðsperrum eftir síðasta tímann með honum. Draumurinn var reyndar með þeim betri en ég er að fara að hitta manninn á eftir og hef mestar áhyggjur af því að ég blóðroðni um leið og hann birtist ;-)
3 Comments:
Hvað búa aftur sirka margir karlmenn í London?? Þó flestir þeirra séu einhverjir ólögulegir bretar hljóta að vera þarna einhverjir sem eru þess virði að klípa í :D
Sæl mín kæra.
Þið sem ekki eigið þá viljið þá. Við sem eigum þá vildum helst að þeir væru togarasjómenn. Er þetta ekki týpískt?
Ég sem aldrei fer á skíði fékk óhemju þörf fyrir að fara á skíði rétt eftir hnéspeglun.
Mig hefur alltaf vantað tíma til að dútla og ditta að. Nú hef ég hann, en er búin að steingleyma hvað það var sem var svona mikilvægt að gera.
Kossar MJÓNA veiðikló
Jà thetta karlmannsleysi gengur ekki. Èg er ordin thannig ad mig dreymir bara karlmenn...ekki ein einasta kvenvera hefur làtid sjà sig ì hàa herrans tìd. Despò er mitt annad nafn. Kvedja frà Côte d'Azur Hulda
Skrifa ummæli
<< Home