þriðjudagur, janúar 31, 2006

Váááá....

Ég sá svooooo fallegan karlmann í hádeginu... á Pret a Manger af öllum stöðum... að ég hreinlega er bara dolfallin, sit bara hér og stari út í loftið! Ætli ég fari ekki bara að leggja leið mína á Pret í hverju hádegi, bara til að auka líkurnar á því að ég sjái hann aftur. Verst hvað samlokurnar þar eru vondar en það er ýmislegt á sig leggjandi :)

5 Comments:

At 31 janúar, 2006 19:10, Anonymous Nafnlaus said...

Hæð, þyngt, litarhaft o.fl. verður nú að fylgja með.

 
At 01 febrúar, 2006 10:09, Blogger Londonia said...

Dökkhærður, með krullur :) í kasmír ullarfrakka... sást á hnakkanum á honum hvað hann var myndarlegur. Ég þakka fyrir að það leið ekki yfir mig hreinlega... það hefði örugglega gerst ef hann hefði brosað til mín... ég hefði bara legið kylliflöt!

 
At 01 febrúar, 2006 12:34, Anonymous Nafnlaus said...

Það eru engar lyftur eða rúllustigar á Pret a Manger svo nú þarf Londonía bara að bíða þar til hún sér hann aftur og elta hann í lestina og blikka hann svo í rúllustiganum þar. Þá er það bara komið:) Hús, bíll, leðursófasett og tvö börn áður en maður veit af

 
At 01 febrúar, 2006 17:15, Blogger Londonia said...

Ahhhh... ekki vitlaust hugmynd... rúlla þessu alveg upp svona :) Þú mælir sem sagt ekki með yfirliðum í tíma og ótíma?

 
At 02 febrúar, 2006 12:30, Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að konur í yfirliði heilli ekki karlmenn neitt sérstaklega nema þá að þeir séu perrar eða svæfingalæknar, hinir verða bara hræddir

 

Skrifa ummæli

<< Home