föstudagur, mars 31, 2006

Beauty & the Geek...

Það er nýjasta 'reality' prógrammið í sjónvarpinu. Sex nördar (karlmenn) og 6 gellur sem eru flestar í einhvers konar módelstörfum! Verður áhugavert að fylgjast með því. Fyrsta þrautin... stelpurnar þurfa að svara ýmsum spurningum eins og t.d. hvenær lauk seinni heimsstyrjöldinni (ein svaraði 1966) og hvað er mælt með Richter skalanum (ein svaraði: vísindadót!). Þrautin fyrir strákan var að dansa... og ég get svo svarið það að stelpurnar stóðu sig betur en þeir!!
Annars held ég svei mér þá að vorið sé komið hér í London... það kom í fyrradag... hitastigið komið í tveggja stafa tölu, loksins og bara fjör framundan. Í tilefni af því skruppum við GAA á barinn eftir vinnu, AllBarOne, fínn bar en við töluðum svo mikið að við gleymdum alveg að skoða strákana - erum nett glataðar í þeirri deildinni. Þurfum að lesa Superflört og komast í gírinn fyrir sumarið.

fimmtudagur, mars 23, 2006

long time no blogg....

Lífið er að komast í fastar skorður eftir mjög svo annasama síðustu viku. Flaug heim á miðvikudagskvöldið, gisti á Hótel Nordica - mjög fyndið, að vera á hóteli í Reykjavík :) Þurfti að rífa mig upp kl. 6:45 á fimmtudagsmorguninn eftir tæplega fjögurra tíma svefn, rúta í Svartsengi kl. 8:00 þar sem voru fyrirlestrar til rúmlega 5. Ég stakk reyndar af um hálf 4 því Helgi bróðir og Þórunn komu sér loksins saman um nafn á stúlkuna og ákváðu að skíra þennan fimmtudag sem var líka afmælisdagur Gabríels, bróður Þórunnar. Þannig að ég rétt náði uppá hótel að sækja skírnargjöfina. Og stúlkan heitir Gígja Helgadóttir og virtist líka það nafn vel, haggaðist ekki þó stofan væri full af fólki og kona í skrýtnum búning sullaði yfir hana vatni :) Um kvöldið var svo vinnudinner á Borginni, svaka fjör, Sylvía Nótt og alles. Útlendingarnir voru sumir hverjir ansi skrýtnir á svipinn eftir þá uppákomu. Ég ætlaði nú reyndar að vera komin uppá hótel á skikkanlegum tíma og var að búast til brottfara um miðnætti en einhverra hluta vegna tók það mig tvo tíma að komast upp á hótel. Þannig að aðra nóttina í röð náði ég ekki almennilegum svefni því 7:30 á föstudagsmorguninn byrjaði klukkan að hringja. Sem betur fer voru fyrirlestrar dagsins á Nordica og þar fyrir utan þá hlustaði ég bara á þann fyrsta. Svo var mér ekki til setunnar boðið, aðalfundarundirbúningur og læti. Var á hlaupum það sem eftir var dags og það get ég alveg sagt ykkur að mér finnst algjörlega óskiljanlegt hvernig sumar konur geta trítlað um á háum hælum allan daginn, alla daga!! Þegar dagur var að kveldi kominn, eftir mikil hlaup, aðalfund, kokteil, kvöldverð og 10 mín innlit á Rex þá langaði mig mest til að höggva undan mér fæturna!! Svei þeim fávita sem fann upp háhælaða skó!! Og að maður skuli taka þátt í þessu... það er nú kannski það besta.
Bretarnir eru samir við sig, Gordon kallinn Brown búinn að birta fjárhagsáætlun næstu ára... hann þykist ætla að ausa peningum í menntamál og gamla fólkið og ég veit ekki hvað og hvað. Og það án þess að hækka skatta... gaman að sjá hvernig það gengur hjá honum. Og svo er hann orðinn svo umhverfisvænn, vegatollar á bensínhákana og fjórhjóladrifnu monsterana... eins og það skipti einhverju málið fyrir fólkið sem hefur efni á þessum dýru bílum, hvort það þarf að borga 200 pundum meira á ári!
Og aðstoðarskólastýra í einhverjum skólanum er að fara í mál út af stólnum sem henni var gert að sitja í árum saman. Stóllinn nefnilega prumpaði! Það sem sagt brakaði svo skemmtilega í stólnum að það hljómaði eins og búkhljóð frá hinni virðulegu aðstoðarskólastýru. Og þetta hefur valdið henni þvílíku hugarangri árum saman að hún er að fara í mál vegna andlegs álags og sálarskaða sem hún hefur hlotið eftir þessa 'misnotkun'. Ég gat nú ekki að því gert en að hugsa sem svo... hvers konar andsk.... rola er manneskjan... aðstoðarskólastjóri og lætur valta svona yfir sig.
http://www.metro.co.uk/weird/article.html?in_article_id=11191&in_page_id=2
Nú svo er það konan sem verður algjörlega skelfingu lostin ef hún sér grænar baunir! Þær eru ýmsar fóbíurnar, það er víst ábyggilegt. En konugreyið getur t.d. ekki farið á lókal pöbbinn sinn því þar er náttúrulega allt vaðandi í grænum baunum né getur hún farið fram hjá frystinum í Tesco því þar er jú líka allt fullt af frosnum grænum baunum. Því miður finn ég ekki fréttina á netinu því hún var bráðfyndin.
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili og reyni að vinna smá :)

föstudagur, mars 10, 2006

Kynferðisleg áreitni á blogginu mínu...

Eins og glöggir lesendur hafa e.t.v. tekið eftir þá setti ég inn færslu á ensku fyrir nokkrum dögum. Síðan þá hafa verið sett tvö komment við þá færslu með tenglum í verulega vafasamar síður. Ég vona að það dugi að eyða þessari færslu og ég fái ekki fleiri svona komment inn á mitt mjög svo siðsama blogg. Ef einhverjir hafa náð að skoða þessar tvær færslur og ég tala nú ekki um smellt á einhverja af tenglunum þá fyrri ég mig allri ábyrgð og mun alls ekki taka þátt í kostnaði við áfallahjálp af nokkru tagi, hvorki fyrir siðsamar, giftar konur né einstæðar mæður.