long time no blogg....
Lífið er að komast í fastar skorður eftir mjög svo annasama síðustu viku. Flaug heim á miðvikudagskvöldið, gisti á Hótel Nordica - mjög fyndið, að vera á hóteli í Reykjavík :) Þurfti að rífa mig upp kl. 6:45 á fimmtudagsmorguninn eftir tæplega fjögurra tíma svefn, rúta í Svartsengi kl. 8:00 þar sem voru fyrirlestrar til rúmlega 5. Ég stakk reyndar af um hálf 4 því Helgi bróðir og Þórunn komu sér loksins saman um nafn á stúlkuna og ákváðu að skíra þennan fimmtudag sem var líka afmælisdagur Gabríels, bróður Þórunnar. Þannig að ég rétt náði uppá hótel að sækja skírnargjöfina. Og stúlkan heitir Gígja Helgadóttir og virtist líka það nafn vel, haggaðist ekki þó stofan væri full af fólki og kona í skrýtnum búning sullaði yfir hana vatni :) Um kvöldið var svo vinnudinner á Borginni, svaka fjör, Sylvía Nótt og alles. Útlendingarnir voru sumir hverjir ansi skrýtnir á svipinn eftir þá uppákomu. Ég ætlaði nú reyndar að vera komin uppá hótel á skikkanlegum tíma og var að búast til brottfara um miðnætti en einhverra hluta vegna tók það mig tvo tíma að komast upp á hótel. Þannig að aðra nóttina í röð náði ég ekki almennilegum svefni því 7:30 á föstudagsmorguninn byrjaði klukkan að hringja. Sem betur fer voru fyrirlestrar dagsins á Nordica og þar fyrir utan þá hlustaði ég bara á þann fyrsta. Svo var mér ekki til setunnar boðið, aðalfundarundirbúningur og læti. Var á hlaupum það sem eftir var dags og það get ég alveg sagt ykkur að mér finnst algjörlega óskiljanlegt hvernig sumar konur geta trítlað um á háum hælum allan daginn, alla daga!! Þegar dagur var að kveldi kominn, eftir mikil hlaup, aðalfund, kokteil, kvöldverð og 10 mín innlit á Rex þá langaði mig mest til að höggva undan mér fæturna!! Svei þeim fávita sem fann upp háhælaða skó!! Og að maður skuli taka þátt í þessu... það er nú kannski það besta.
Bretarnir eru samir við sig, Gordon kallinn Brown búinn að birta fjárhagsáætlun næstu ára... hann þykist ætla að ausa peningum í menntamál og gamla fólkið og ég veit ekki hvað og hvað. Og það án þess að hækka skatta... gaman að sjá hvernig það gengur hjá honum. Og svo er hann orðinn svo umhverfisvænn, vegatollar á bensínhákana og fjórhjóladrifnu monsterana... eins og það skipti einhverju málið fyrir fólkið sem hefur efni á þessum dýru bílum, hvort það þarf að borga 200 pundum meira á ári!
Og aðstoðarskólastýra í einhverjum skólanum er að fara í mál út af stólnum sem henni var gert að sitja í árum saman. Stóllinn nefnilega prumpaði! Það sem sagt brakaði svo skemmtilega í stólnum að það hljómaði eins og búkhljóð frá hinni virðulegu aðstoðarskólastýru. Og þetta hefur valdið henni þvílíku hugarangri árum saman að hún er að fara í mál vegna andlegs álags og sálarskaða sem hún hefur hlotið eftir þessa 'misnotkun'. Ég gat nú ekki að því gert en að hugsa sem svo... hvers konar andsk.... rola er manneskjan... aðstoðarskólastjóri og lætur valta svona yfir sig. http://www.metro.co.uk/weird/article.html?in_article_id=11191&in_page_id=2
Nú svo er það konan sem verður algjörlega skelfingu lostin ef hún sér grænar baunir! Þær eru ýmsar fóbíurnar, það er víst ábyggilegt. En konugreyið getur t.d. ekki farið á lókal pöbbinn sinn því þar er náttúrulega allt vaðandi í grænum baunum né getur hún farið fram hjá frystinum í Tesco því þar er jú líka allt fullt af frosnum grænum baunum. Því miður finn ég ekki fréttina á netinu því hún var bráðfyndin.
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili og reyni að vinna smá :)
4 Comments:
Gamla fólkið er greinilega í tísku í ár þar sem nú opnar ekki stjórnmálamaður á sér þverrifuna án þess að lofa því einbýlishúsum með heitum potti, limósínum og nautalundum í hvert mál og ég veit ekki hvað. En bíddu nú hæg...vegatollar á jeppa!!! Ekki hér takk fyrir. Þetta eru auðvitað bráðnauðsynleg farartæki á þessum slóðum. Hvernig á fólk eiginlega að komast upp í Breiðholt eða upp í Mosó eða jafn vel þaðan af lengra án þess að vera á upphækkuðum jeppa á 48" dekkjum? Þetta væri eins og að setja aukagjald á hundasleða á Grænlandi
Á suður Englandi er ekki alveg jafn stormasamt og á Fróni. Veturinn 1994-1995, sem var NB versti snjóavetur síðan 1963, var einn morgun uþb 1/4cm snjólag þegar ég kom út heiman frá mér. Það er vert að taka það fram að þetta snjólag var horfið þegar ég kom út á brautarstöð sem er í innan við 500 metra fjarlægð. Þannig að þörfin fyrir tröllajeppa er ekki gríðarleg á þessum slóðum. Það virðist hins vegar þurfa jeppa til að keyra börnin í skólann einhverra hluta vegna!
Annars er svo langt síðan Grumpa hefur látið sjá sig að ég var farin að halda að hún hefði náð að kíkja á einhverja af sóðalegu tenglunum sem einhver dónakall setti inn í comment hjá mér og hefði hreinlega drukknað í sora pop-up gluggum... að hún hefði hreinlega fengið klámáfall og lægi nú í dái. Mikið er ég glöð að svo er ekki...
Ég missti nú alveg af klámsjóvinu. Hef þess í stað verið að eyða tímanum í hlut sem ég hef reynt að forðast í lengstu lög, þ.e að vinna yfirvinnu. Reyni nú mitt ítrasta til að hætta þessum óskunda, hef margt annað áhugaverðara við tíma minn að gera eins og að fylgjast með blogginu hjá Londoníu
Skrifa ummæli
<< Home