Þá er komið að því...
Ég er ekki lengur 'dirty something' Skrýtið... mér finnst ég alltaf vera bara svona ca 27-28... Og þegar vinnufélagarnir trúa því ekki að maður sé deginum eldri en 32 þá finnst manni þetta bara hið besta mál :)
Og þegar ég mætti í vinnuna í gær biðu mín dásamlegar gjafir frá pabba & co - Rósir og bangsi, kampavín og konfekt, blaðra og konfekt :)


Og svo kom þessi seinnipartinn, frá Pottormunum :)

Planið fyrir kvöldið er að fara út að borða með góðu fólki sem ýmist býr hér í London eða er hér í heimsókn. Ætlum á marokkóskan stað í South Kensington sem ku vera mjög svo dægilegur. Svo kemur bara í ljós hvort við förum eitthvað á eftir...