sagan endalausa
hósthósthósthósthósthósthósthóst
atsjúatsjúatsjúatsjúatsjúatsjúatsjú
þannig er það nú og hefur verið undanfarnar tvær vikur, hósti dauðans og loksins þegar hann virðist vera að skána þá fæ ég kvef.... búin með heilt box af snýtipappír síðan í gærkvöldi. Veit eiginlega ekki hvar þetta endar en er ekki í miklu bloggstuði þannig að þið verðið að sætta ykkur áframhaldandi þögn í bili
13 Comments:
Sæl Ída mín.Ég vona að heilsa fari að batna hjá þér.Ég á líka við smá heilsufarsvandamál að stríða,eitthvað sem er áskapað.Kemur til af öllu þessu íþróttabrölti í gegnum tíðina. Annað hnéð gaf sig er ég var í kapphlaupi við Arnar,sem telst því nokkuð sprettharður þar sem hann vann mig! En í speglun fór ég í síðustu viku og er rétt búin að sleppa hækjunni.Langbesta veður ársins var því um nýliðna helgi og ég gat mig hvergi hreyft.Skelfileg reynsla.Að öðru leyti er allt í góðu.Vorum í Boston um páskana þar sem GPJ rölti í mark í árlegu Bostonmaraþoni. Börnin að koma í fyrst skipti til USA. "London er skemmtilegri" sagði Arnar,sem er nýorðinn 15 ára,Björgin mín varð 12 ára um daginn.Allt á fullu við undirbúning ættarmótsins.
En Ída mín,láttu þér batna.Vonandi áttu lýsi. Sólarkveðjur úr Garðabæ.
Oddný
Tek Heilsutvennu samviskusamlega á hverjum degi.
Ekki gott að heyra af hnénu - en það er eins og ég hef alltaf sagt, íþróttir eru stórhættulegar ;)
Ég hafði frétt af ferðum ykkar - hef verið að lesa bloggið þeirra Helga og Írisar. Ég þarf að reyna að skjótast til þeirra við tækifæri
Heilsutvennan er fín, en getur Londonía ekki ráðist á einhvern einmanna mann og kysst frá sér kvefið? Er það ekki það nýjasta? Að kyssa burt ofnæmið?
Er ekki heilsan eitthvað að skána Ída mín? Lýsi hefur löngum verið ofmetið meðal. Koníak að sama skapi vanmetið. Það sakar a.m.k. ekki að gefa því sjéns.
Helgi Mar
Þetta sagði pabbi einmitt fyrir margt löngu. Maður ætti að lepja koníak eins og vatn þegar maður væri lasin. Ekki að það læknaði mann en þá væri bara ekki jafn djö.... leiðinlegt að vera lasin :)
Æ æ það er nú alveg ferlegt Ída að lenda í þessu. En vonandi ertu öll að hressast núna. Vona svo innilega að þú verðir orðin eldhress og kát á laugardaginn í mega Eurovision partýinu okkar á The Warwick.
Sjáumst
Jórunn
Ef þú ferð að skvetta í þig óhóflegu magni af koníaki passaðu þig bara á ljósastaurunum, þeir geta verið stór varasamir
HAHAHA... Það væri þá ekki nema ég færi að ganga á ljósastaura - ekki hefur maður bifreið til umráða til að keyra þá niður eins og sumir mætir menn.
Frést hefur af Londoníu í Finnlandi að kaupa sér skrýmslabúninga sem þykja alveg sérstaklega smart í dag
hmmmm Londonía skrímsli.. ætli menn hafi húmor fyrir svona í LONDON ! Hvað er annars að frétta eru enn að hósta eða eru einhverjar krassandi fréttir á leiðinni eins og hvernig hann lítur út þessi sem kyssti úr þér kvefið !!!
Kyssti á þér nefnið hvað? Söguna takk ;D
jæja... alltaf í boltanum og svona... ég bara hef ekki hugmynd um hvað er verið að bulla hér... ég hef ekki kysst neina undanfarið nema vini og ættingja. Veit ekki hvaðan þið hafið það að einhver hafi kysst úr mér kvefið.
Og skrímslabúningar eru uppseldir í Helsinki sem og geisladiskar með Lordi.
Ha, ha, ha. Monopoly tókst að lesa Kvefið sem Nefið (ROTFL)
Skrifa ummæli
<< Home