Friðurinn úti...
Mini Monopoly er mætt á svæðið og mamma hennar fékk náðarsamlegast að koma með. Sú stutta var víst þæg og stillt í flugvélinni en fannst ferðalagið nú reyndar alveg passlega langt og vildi bara komast út úr þessari flugvél eftir ca hálftíma. Sama sagan í leigubílnum frá flugvellinum og tók sú bílferð þó ekki nema hálftíma. En hún tók því með jafnaðargeði að það þjónaði engum tilgangi að yfirgefa fína leigubílinn á miðri M4 hraðbrautinni. Hún beit það svo í sig að hún væri sko alls ekki þreytt og þrjóskaðist við að leggja sig og hélt að sjálfsögðu vöku fyrir móður sinni líka. Þær voru því orðnar ansi fölar og þreytulegar þegar líða tók á daginn. Mini gleymdi svo þvermóðskunni í smástund og lognaðist að sjálfsögðu út af og það var eins og að tala við stein þegar átti að vekja hana til að fara út að borða. En það náðist nú samt á endanum (og þá vitum við hvaðan Mini Monopoly hefur þrjóskuna) og við borðuðum gómsætar pizzur á Zizzi's. Þær mæðgur sváfu svo bara á sínum grænu eyrum í morgun þegar ég fór í vinnuna, sváfu reyndar langleiðina fram að hádegi - svona á að sofa í fríum, það er alveg ljóst. Vona bara að þær haldi því áfram :)
3 Comments:
Af fenginni reynslu veit ég að Londonía á eftir að finna kámug fingraför á ólíklegustu stöðum næstu vikurnar (og hjá mér varir heimsóknin venjulega ekki yfir nema í einn eftirmiðdag)!:)
Hmmm... ég þarf sennilega að skipta um skrúbbu - hún sér örugglega ekki þessi fingraför sem munu án efa vera út um allt eftir 8 daga veru Mini Monopoloy í meyjardyngjunni minni.
Mini Monopoly finnur örugglega staði til að setja mark sitt á. Og hvað þrjósku varðar könnumst við Mini Monopoly ekki við það orð, það kemur ekki fyrir í okkar samskiptum - já eða þannig sko.
Skrifa ummæli
<< Home