peningar eða útlit
Skemmtileg frétt í Daily Mail í dag (sem mér skilst að sé fordómafullt rasistablað en er samt með ágætis kvennakafla á fimmtudögum). Samkvæmt nýrri könnun meðal kvenna á aldrinum 18-35 ára þá verður það æ algengara að konur velji sé karla eftir útlitinu en ekki eftir stöðu og innkomu eins og áður tíðkast. Þetta stafar að sjálfsögðu af auknu fjárhagslegu sjálfstæði kvenna og er að sjálfsögðu hið besta mál. Og þeim mun fjáðari sem konur eru, þeim mun meiri áhersla á útlit steggjanna! Þannig að búðastrákur sem lítur út eins og grískur guð er eftirsóknarverðari en lúðalegur forstjóri með skrilljónir í veskinu. Ég verð nú hreinlega að viðurkenna að það er nú svolítið til í þessu - verst að maður skuli ekki eiga meira af peningum ;-)
1 Comments:
Bill Gates eða tvífari Dave Navarro sem sem vinnur kanski á Aktu-Taktu....hmm, let me think!!
Skrifa ummæli
<< Home