fimmtudagur, desember 28, 2006

Jólajólajólafrí

Það er ekkert smá ljúft að vera í fríi... það ættu allir að prófa það, helst nokkrum sinnum á ári :-) Dagskráin fram að þessu hefur verið í slakara lagi, 2 dagar í Reykjavík sem fóru í að hitta vini og ættingja - fór meira að segja hitta gamla skólafélaga úr MH í tilefni þess að x mörg ár eru liðin síðan við kvöddum þá mætu stofnun með hvítar húfur á kollinum. Á Þorláksmessu (þeirri fyrstu skötulausu í mörg herrans ár) lægði vind þannig að hægt var að fljúga á Egilsstaði þar sem Þórunn mágkona mín tók á móti mér. Þar sem taskan mín kom ekki fyrr en með næstu vél á eftir (allt mjög afslappað og ekki miklar áhyggjur sem þarf að hafa af öryggismálum í innanlandsflugi á Íslandi :-)) sem kom ekki fyrr en tæpum klukkutíma síðar þá skelltum við okkur á Hamborgarabúlluna en eins og kunnugt er þá rekur Tommi í Tommaborgurum tvær slíkar búllur, eina í Reykjavík og aðra á Egilsstöðum. Var búin að panta mér venjulega hammara þegar ég kom auga á uppáhaldið mitt af matseðlinum í den, UbbaDubba samloku... prófa hana næst þegar ég verð á ferðinni á Austurlandi.

Jólunum eyddi ég sem sagt á Seyðisfirði í faðmi fjallanna og litlu fjölskyldunnar þar. Við systkinin elduðum okkur rjúpur og þær tókust bara ansi vel og ég verð að segja að hann bróðir minn er mikill snillingur í sósugerð. Máni kom svo á annan í jólum með köttinn Klæng í farteskinu. Sá var ekki alveg á því að láta flytja sig svona milli landshluta og stakk af við fyrsta tækifæri - vona að hann sé kominn í leitirnar því drengurinn var verulega áhyggjufullur. En við eyddum sem sagt dögunum við lestur og spil milli þess sem við nörtuðum í alls kyns góðgæti eins og siður er á jólum.

Í gær flaug ég svo í bæinn, hvar beið mín þessi fíni bílaleigubíll á góðu verði - takk Siggi :-) - og brunaði sem leið lá í Hólminn til að kíkja aðeins á fjölskylduna mína þar. Alveg merkilegt hvað fólkið mitt þarf að dreifa sér um allt land :-) Hér verð ég væntanlega þar til seinni partinn á morgun - þá kem ég aftur í bæinn. Dagskráin næstu daga í bænum er ekki alveg komin á hreint þannig að þeir sem hafa brennandi áhuga á að líta mitt fagra smetti ættu endilega að láta mig vita, t.d. með tölvupósti á vinnunetfangið mitt eða með sms. Ég flýg út aftur 2. janúar með eftirmiðdagsvélinni þannig að það er ekki um marga daga að ræða.

miðvikudagur, desember 20, 2006

Sit a Heathrow ad bida e velinni og ...

ad sjalfsogdu er seinkun, amk halftimi... Thannig ad eg blogga bara ur simanum minum a medan :-) Thad verdur gott ad komast heim i ferskt loft, bragdgott kranavatn, aetan fisk og sidast en ekki ad hitta ykkur oll

sunnudagur, desember 17, 2006

Jólafrí á næsta leyti


og það þó fyrr hefði verið! Alveg kominn tími á smá frí það get ég sagt ykkur. Búið að vera nóg að gera undanfarnar vikur svo vægt sé til orða tekið. En manni leiðist ekki á meðan. Annars finnst mér London hálf tómleg núna... Guðrún Anna er flutt aftur heim til Íslands og þó það fari ekkert rosalega mikið fyrir henni þá er eitthvað sem vantar. En síðasta helgin hennar var fjörug og skemmtileg, jólapartý vinnunnar og næturklúbbur á eftir og ég veit ekki hvað og hvað. En hennar verður sárt saknað, svo mikið er víst.