fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar elskurnar mínar

Það var því miður ekki frí hér eins og heima á Íslandi en hér var hins vegar sumar ;-) Þeim fannst það frekar fyndið Bretunum að það væri fyrsti dagur sumars á Íslandi og hitastigið undir frostmarki!

Það hefur helst verið í fréttum hér að Villi prins er hættur með kærustunni. Það var á forsíðum allra blaða á sunnudaginn, aðalfréttin á BBC og bara ekki talað um annað. Sum blöðin leiddu getum að því að hún væri of 'middle class', ekki nógu fín fyrir kóngafólkið. Mamman þykir sérlega ófín, notar tyggjó, segir 'Pleased to meet you' í staðinn fyrir 'How do you do' og eitthvað fleira sem er ekki nógu 'stiff upper lip'legt fyrir rojal-liðið. Villi er víst nett brjálaður yfir þessu... þykist sennilega vera ósnobbaður sjálfur sem margir draga stórlega í efa.

3 Comments:

At 20 apríl, 2007 23:45, Anonymous Nafnlaus said...

Daily Mail klikkar ekki

 
At 23 apríl, 2007 20:19, Anonymous Nafnlaus said...

hey come on! hann er auðvitað gay, það sjá það allir! hún á kanski sætan bróður;D

 
At 25 apríl, 2007 22:29, Blogger Hulda hefur talað... said...

Guði sér lof að þau séu hætt saman. Vinkona mín, sem var í St. Andrews (sama skóla og hann - hann spjallaði meira að segja einu sinni við hana OMG!!) ætlar nefnilega að giftast honum...og ég fæ að vera brúðarmey;)

 

Skrifa ummæli

<< Home