mikið var...
segja eflaust einhverjir... þ.e.a.s. ef einhverjir eru ennþá að tékka á því hvort ég hafi bloggað eður ei. Einmuna pennaleti verið í gangi án þess þó að það hafi verið svo viðburðasnautt hjá mér undanfarið. Þetta hefur helst á daga mína drifið:
- Eftir Afríku-ferðina skrapp ég aðeins til Íslands á eitt stykki aðalfund og svo á árshátíð. Þar eyddi ég góðum parti kvöldsins í að leita að fólkinu sem mig langaði að hitta en sökum fjölmennis gekk hálf illa að finna það. Öðrum góðum parti var svo varið í að komast á og frá snyrtingunni en það var ca. 10-15 mín. gangur þangað. Hefði verið vel þegið að hafa sætaferðir - þá hefði kvöldið nýst betur :-)
- Hafði því miður lítið tækifæri til að hitta vini og ættingja í þessu stoppi en náði þó að hitta Mánalinginn minn sem verður stærri og gáfaðri með hverjum deginum. Ég hef það eftir föður hans að sá stutti sé alvarlega sýktur af skíða-bakteríunni eftir margar góðar salíbunur í Seyðisfjarðar-fjöllum. Ef einhverjir skíðaiðkandi ættingja eða vinir lesa þetta þá mættu þeir hinir sömu gjarnan bjóða drengnum með sér í skíðatúra út fyrir höfuðborgarsvæðið :-)
- Fékk Guðbjörgu systur í heimsókn um páskana, voða ljúft. Hún kom færandi hendi með bláberjalambalæri úr Gallerý Kjöti. Bauð íslensku vinafólki í mat á páskadag og þau eru enn að tala um hvílíkt lostæti var á boðstólum. Við skruppum líka til Cambridge þar sem fram fór árleg róðrakeppni milli Cambridge og Oxford. Því miður náðum við ekki að berja augum vöðvastælta ræðara en í sárabætur fórum við í smá bátsferð á ánni sem rennur gegnum bæinn.
- Engar fréttir af sjénsastandi - skilaði manninum og fer því engum sögum af honum meir.
- Alsendis óvíst hvenær ég kem heim næst en þó ekki ólíklegt að það verði helgina 17.-20. maí. Þá skilst mér að einn úr pottormahópnum mín um ætli að halda uppá merkisafmæli og það sem trekkir ekki síður, 25 ára útskriftarafmæli úr Hlíðaskóla :-)
- Engin áform ennþá varðandi sumarleyfi en þó gæti verið á dagskrá að heimsækja Jóda frænda til Tokoy einhvern tímann á haustmánuðum.
- Reyni að koma einhverjum myndum inn fljótlega frá Afríkuferðinni :-)
Af innfæddum er einna helst að frétta að þeir eru iðnir við að stinga/skjóta hvern annan til bana þessa dagana, sérstaklega unglingarnir. Eitthvað eru menn ráðalausir hvað gera skuli - hér vantar greinilega eitt stk. MótorsmiðjuMumma. Blair og Cameron blaðra einhverja bölvaða dellu um hvað skuli gera eins og hækka aldur þeirra sem mega eiga skotvopn! Eins og það breyti einhverju!
Nú svo opna hér fataverslanir á hverju horni sem ekki væri í frásögur færandi nema að á skírdag opnaði stórverslun á Oxford Street og var hamagangurinn svo mikill að flytja þurfti einhverja starfsmenn á slysadeild með minniháttar meiðsli og kalla þurfti út viðgerðarmenn til að gera við dyrnar. Verslun þessi selur ódýrar eftirlíkingar af merkjavörum, sem detta í sundur við fyrsta þvott og ef þær gera það ekki þá lita þær allan annan þvott eða eru svo rafmagnaðar að það mætti knýja umhverfisvænan Smart bíl. Og á þriðjudaginn, þegar ég kom úr ræktinni sem er í kjallaranum á næsta horni við þessa verslun, þá lá röðin hálfan hring kringum húsaröðina... já... ég sagði HÚSARÖÐINA. Það mætti halda að sjoppan verði bara opin í viku en ekki um ókomna tíð. En fyrir þá sem hafa áhuga í næstu Lundúnaferð þá heitir búllan Primark og er á fyrsta horni frá Marble Arch :-)
Nú svo ætla einhverjir starfsmenn neðanjarðarlestanna í verkfall í þrjá daga í næstu viku! Það er ekki gott. Það er eiginlega mjög slæmt. Það þýðir að annað hvort þarf ég að labba í vinnuna (sem tekur alveg rúmlega klukkutíma) og heim aftur eða taka strætó og það gæti tekið ansi langan tíma þegar allir sem annars væru að taka lestina fara á bíl í vinnuna.
En ætli sé ekki best að reyna að gera eitthvað af viti :-)
knús og kreistur
Londonia
PS: þið megið alveg tjá ykkur, senda mér kveðjur og kossa - svona svo ég viti að þið hafið kíkt á bullið mitt ;-)
6 Comments:
Sæl frænka
Fjórir gamlir menn flugu út til London í morgun til að horfa á fótbolta. sá á síðunni að neðanjarðarlestir ganga ekki næstu 3 daga. Fínt það eða hitt þó heldur, því ekki nenna þeir að ganga og má reikna með að gjaldeyririnn fari í leigubíla og mjöð.
Afríkuferðin þín fór alveg framhjá mér. Verð greinilega að leggjast í blogglestur um helgina.
Kossar frá höfuðborg Norðurlands
Maja
Lestarverkfallið hefst á sunnudaginn þannig að þeir geta notið þess að ferðast í hita og mollu neðan jarðar amk í dag og á morgun :-)
Um að gera að eyða bara nóg í einnota föt. Er ekki fullt af fólki sem fær við þetta vinnu? Eða eykst við það barnaþrælkun og mengun?
Hi Ida, hvar vaeri eg ef eg myndi ekki lesa thessa sidu. Tharf ad fara til London a sunnudaginn a radstefnu og se ad eg er strax komin i vandraedi ut af thessu verkfalli. Annars verd eg lika jata syndir minar. Eg elska Primark og mer tekst nu barasta ad lata fotin endast agaetlega ( en eg by i Hull og vid erud audvitad oll frekar krumpud). Nattfot og bolir er t.d eitthvad sem eg versla thar og sidan eitthvad smadrasl.. ja ekki ma gleyma barnafotum fyrir vini og vandamenn.
Sæl esskan... Dama 21.apríl.....bara svona ef þú þarft skyndilega að komast í gott partý:)
Sæl Ída!
Við pabbi þinn vorum að koma að norðan. Skruppum til Akureyrar og Siglufjarðar um helgina.
Njóttu lífsins :)
Skrifa ummæli
<< Home