mánudagur, febrúar 27, 2006

Langt síðan síðast

ég veit ég veit - frí, brjálað að gera í vinnunni, almenn leti - helstu ástæður fyrir bloggleysi.
En Grumpa hafði næstum því rétt fyrir sér - barinn heitir The Horny Viking og innflutningur á íslensku brennivíni og ORA grænum gengur vel enda tollar mjög lágir á Tenerife. Herbert hefur algjörlega slegið í gegn enda skortur á svona hæfileikamönnum á eyjunni. Geir Ólafs mun því sjá um fjörið á móti Hebba enda ekki hægt að þræla mönnum út með því að láta þá vinna á hverju kvöldi. Ég sé fram á að þetta geti alveg orðið athvarf fyrir íslenska poppara sem landinn kann ekki að meta. Hef einmitt verið að reyna að ná í Leoncie - held að hún myndi falla ótrúlega vel í kramið hjá líkþornaliðinu, sérstaklega karlpeningnum. Myndir verða settar inn á myndalinkinn síðar. En svona að öllu gríni slepptu þá var fínt að komast í svona letifrí og frábært að hitta Tótu & Co - varla hægt að kjósa sér betri félagsskap. Mesta lagi farið í gönguferðir á ströndinni, annars bara hótelgarðurinn, sólbekkurinn, bókinn, hótelgarðsbarinn... eins og þetta á að vera :)

Nú svo þegar heim kom tók við ágætis vinnutörn við að undirbúa hina ýmsu fundi s.s. erindi háttvirts forsætisráðherra Íslands sem og stjórnarfund bankans. Þeirri törn lauk með kvöldverði á Stamford Bridge og Chelsea-Barcelona. Minn ágæti yfirmaður bauð svo öllum í drykk á eftir þannig að ég skrönglaðist ekki heim til mín fyrr en um 2 leytið þannig að fimmtudagurinn var frekar lufsulegur. En það þýddi ekkert að væla yfir því. Stelpukvöld með stelpunum af skrifstofunni um kvöldið og algjörlega bannað að skorast undan því. Við skelltum okkur á Sketch
http://sketch.uk.com/ - voða trendy staðir, misdýrir og maturinn voða funky. En frábær stemning á Sketch Gallery og við skemmtum okkur konunglega.

Föstudagur - mesta furða hvað mér tókst að halda höfði eftir djamm 2 kvöld í röð. Enda mætti ég seint, fór í langan lunch og hætti snemma (hálf 5) :) Og kvöldinu eyddi ég í sófanum mínum til að safna orku fyrir helgina.

Laugardagskvöld - þorrablót Íslendingafélagsins. Svaka stuð... það er óhætt að segja það og svo sem ekkert meira um það að segja. Eða jú annars... maturinn frábær, salurinn flottur og því hægt að taka ofan fyrir þorrablótsnefndinni og klappa og hrópa húrra - þær stóðu sig alveg frábærlega. En ó mæ god, heilsan daginn eftir, það var ekki hægt að hrópa húrra fyrir henni. Vaknaði kl. 8 :( með dúndrandi hausverk en eftir ómælt magn af vatni og slatta af panódil + kaldur þvottapoki á ennið þá tókst mér að sofna aftur þannig að það rættist úr þessu. Lá í leti fram eftir degi en fór þá að hitta Helen & Co og við fórum og borðuðum á Electric í Notting Hill, ekta þynnku mat - Steak Sandwich with carmalized red onion og Sticky Toffee Pudding á eftir :)

Þetta eru síðustu 2 vikur svona í stórum dráttum. Hér er sami skítakuldinn og undanfarna daga og ekkert útlit fyrir að fari að hlýna. Spáir kólnandi og á að fara niður í -3 gráður á nóttunni og það er sko nístingskuldi í London. Og eins og ég hef örugglega minnst á áður þá halda heimskir Englendingar... og reyndar líka þessir vel gefnu... að fyrst maður kemur frá Íslandi þá geti varla verið að manni verði nokkurn tímann kalt. Sé ekki alveg lógíkina í því en þeir búast sem sagt við því að maður geti bara verið á hlýrabolnum og sandölunum í gaddinum. Og halda að maður sé að ljúga því að 5 stiga hiti (eða öllu heldur kuldi) hér í Londons sé svipað og 0 gráður í Reykjavík.
Ég sem hélt að vorið kæmi í mars og var farin að undirbúa mig, skoða vortískuna og 'must haves' eins og t.d. sumarskóna í ár (skv. Harvey Nic)
Þeir kosta skitin 410 pund og mér tekst sennilega að komast uþb 10 skref áður en ég dett á hausinn og hálsbrýt mig en maður verður náttúrulega að tolla í tískunni! Og fyrir ykkur tískudrósir sem lesið bloggið mitt þá má finna allt um 'Must haves' fyrir sumarið á vef Harvey Nicols
En nú ætla ég að reyna að vinna eitthvað smá - þarf víst að gera það líka :)

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Það sem kona getur verið hugguleg

með kókosolíu í hárinu til að mýkja hársvörðinn eftir hárlitun gærdagsins. Hefði sennilega átt að láta gráu hárin njóta sín aðeins lengur og reyna að losna við þurrkinn. En en... beauty is pain þannig að ég lét mig hafa það, hausinn 'on fire' í gærkvöldi og í dag var eins og höfuðleðrið hefði hlaupið um eins og eitt númer :( En kókosolían hlýtur að gera kraftaverk... bara soldið óþægilegt þegar hún lekur niður í augu! Nú og fyrst ég var á annað borð orðin svona huggleg þá var alveg eins gott að taka allan pakkann, andlitsskrúbb, maska og alles. Eins gott að prince charming banki ekki uppá! Hmmm... nema náttlega hann væri kókosbollufíkill :)
Annars er það bara Tenerife-undirbúningur, hrista rykið af sandölunum og bikininu, grafa upp sólarvörnina og allar þessar græjur sem maður þarf í sólinni :) Og svo er það bara sólin á föstudaginn.

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Söngvakeppnin...

Eruð þið ekki að grínast?? Þetta slær alla bresku grínþættina út, ég get svo svarið það. Geir Ólafsson!!!! Og hver er þessi Fanney?? Hún er eins og breima köttur í þvottavél á 1400 snúninga þeytivindingu!! Ég er alveg að missa mig hér í upphrópunarmerkjunum og eftir þessi tvö lög þyrfti ég ekki bara sterkan Mojito heldur sálfræðiaðstoð og áfallahjálp. Og hvað er að Cortes drengnum? Hann hefur greinilega alla ævi dreymt um að vera að norðan, þvílíkur framburður. Hann hlýtur að hafa verið með harðsperrur í tungunni eftir kvöldið. Verð nú að segja að fátt er tilgerðarlegra en Sunnlendingar að reyna að tala norðlensku - Grumpa hlýtur að vera sammála mér um það ;) Og eins og mér hefur alltaf þótt Brynhildur sjarmerandi þá er sá sem semur textann fyrir kynnana greinilega skyldur fyrrverandi Herra Íslandi... En íslenskt sjónvarp hefur náð nýjum lægðum, það er nokkuð ljóst!!