Söngvakeppnin...
Eruð þið ekki að grínast?? Þetta slær alla bresku grínþættina út, ég get svo svarið það. Geir Ólafsson!!!! Og hver er þessi Fanney?? Hún er eins og breima köttur í þvottavél á 1400 snúninga þeytivindingu!! Ég er alveg að missa mig hér í upphrópunarmerkjunum og eftir þessi tvö lög þyrfti ég ekki bara sterkan Mojito heldur sálfræðiaðstoð og áfallahjálp. Og hvað er að Cortes drengnum? Hann hefur greinilega alla ævi dreymt um að vera að norðan, þvílíkur framburður. Hann hlýtur að hafa verið með harðsperrur í tungunni eftir kvöldið. Verð nú að segja að fátt er tilgerðarlegra en Sunnlendingar að reyna að tala norðlensku - Grumpa hlýtur að vera sammála mér um það ;) Og eins og mér hefur alltaf þótt Brynhildur sjarmerandi þá er sá sem semur textann fyrir kynnana greinilega skyldur fyrrverandi Herra Íslandi... En íslenskt sjónvarp hefur náð nýjum lægðum, það er nokkuð ljóst!!
5 Comments:
Þetta er kanski nýjasta trendið hjá artífartí listaliðinu að tala með norðlenskum hreim þó það hafi bara komið til Akureyrar og stoppað yfir helgi. Næst fer það að tala um að bílar séu með skerma (ekki bretti) og kókið sé í bauk.
Ég er líka mest hissa á því að Álftagerðisbræður eru ekki með í Eurovision. Hvað er líklegra til vinsælda en 4 miðaldra menn í rauðum jakkafötum að syngja um fossandi læki og stóðhesta??!
Hæ frænka. Ég held að arfleið akureyrískunnar er frá því Garðar lék Nonna "bauk" enda þekktasta kvikindið sem komið hefur af norðan.
Nema hann sé að forðast 'óperu' hreiminn... þennan ítalska sem svo sumir íslenskir óperusöngvarar virðast koma sér upp, sennilega af því þeir syngja svo mikið á ítölsku :)
Það varð gerð smá villa í skipunarbréfið dómnefndarinnar, í staðinn fyrir að segja "Velja bezta lagið" var óvart sagt "Velja fyndnasta lagið". EN hey, við hin getum þá tekuð upp hina einu sönnu þjóðaríþrótt Íslendinga; Að hlæja að óförum annarra. LOKSINS ER PENINGUNUM MÍNUM VEL VARIÐ HJÁ RÚV.
Já þessi keppni er algerlega ótrúleg, ég forfallni júróvisionsjúklingurinn, finnst bara þessi lög alveg út út kú. Maður er bara komin í forkeppnina 1986, svei mér þá !
Ég held að við ættum bara að flippa svoldið þetta árið og senda Silvíu Nótt, ekki spurning.
Maður fylgist svo spenntur með á netinu í kvöld héðan frá UK.
Jórunn
Skrifa ummæli
<< Home