Það sem kona getur verið hugguleg
með kókosolíu í hárinu til að mýkja hársvörðinn eftir hárlitun gærdagsins. Hefði sennilega átt að láta gráu hárin njóta sín aðeins lengur og reyna að losna við þurrkinn. En en... beauty is pain þannig að ég lét mig hafa það, hausinn 'on fire' í gærkvöldi og í dag var eins og höfuðleðrið hefði hlaupið um eins og eitt númer :( En kókosolían hlýtur að gera kraftaverk... bara soldið óþægilegt þegar hún lekur niður í augu! Nú og fyrst ég var á annað borð orðin svona huggleg þá var alveg eins gott að taka allan pakkann, andlitsskrúbb, maska og alles. Eins gott að prince charming banki ekki uppá! Hmmm... nema náttlega hann væri kókosbollufíkill :)
Annars er það bara Tenerife-undirbúningur, hrista rykið af sandölunum og bikininu, grafa upp sólarvörnina og allar þessar græjur sem maður þarf í sólinni :) Og svo er það bara sólin á föstudaginn.
5 Comments:
Ha det bra i solen på Tenerife.
Er það ekki bara miðaldra fólk í rósóttum sundfötum með líkþorn og appelsínuhúð sem er á Tenerife?!
Hlakka klikk til að sjá yður í næstu viku.
luv h
Er Londonía enn á Tenerife?
Londonía hefur keypt sér íslenskan bar á Tenerife sem heitir The horny viking (sem þýðir auðvitað víkingurinn með hornin)þar sem hún mun selja miðaldra fjölskyldufólki brennivín í volgu kóki, plötur með Geirmundi og grænar baunir og flest annað sem fólk á að venjast að heiman. Auk þess verður hún með nýjustu fréttirnar úr Séð og heyrt og í sumar mun Herbert Guðmundsson koma og skemmta landanum
Skrifa ummæli
<< Home