laugardagur, apríl 01, 2006

Ég er svoooo dugleg :)

Skellti mér barasta í ræktina um hádegisbilið og var voða voða dugleg. Enda þýðir ekkert annað þar sem sumarið er framundan og maður eða öllu heldur kona, þarf að komast í bikinihæft ástand ;) Sumaleyfisplönin eru að taka á sig einhverja mynd, loksins. Allt útlit fyrir að ég skelli mér til Bahamas í byrjun júlí. Þarf bara að finna mér flug á góðu verði og þá er allt klappað og klárt :) Get ekki beðið. Monopoloy og Mini Monopoly ætla að færa mér bókina um danska kúrinn þannig að kílóin fá að fjúka eitt af öðru. Nú og svo náttúrulega er það ræktin og hann Antonio, þjálfarinn minn :-Þ Allt mjög hvetjandi sem sagt.
Við GAA ætlum jafnvel að kíkja eitthvað út úr húsi í kvöld, eitthvað rólegt bara eins og í gær en allavega er kominn vorfiðringur í okkur og þ.a.l. ekki hægt að sitja heima öll kvöld. Þangað til ætla ég að kíkja í blaðið, ráða Samurai SuDoku gátu dagsins og hlusta á Depeche Mode. Er nefnilega að fara á tónleika með þeim á morgun... vá hvað ég hlakka til að sjá þá 'live'.

2 Comments:

At 03 apríl, 2006 21:54, Anonymous Nafnlaus said...

Og hvernig voru svo tónleikarnir?

 
At 03 apríl, 2006 23:01, Blogger von grumpenhofen said...

Ég treysti nú ekki þessum danska kúr alveg. T.d borðar kanínan mín ekkert nema grænmeti en samt er hún alger hlunkur. Útskýrirð það?!

 

Skrifa ummæli

<< Home