Hvað gerir fólk á leiðinni í og úr vinnu
Það er ýmislegt sem fólk gerir sér til dundurs til að láta tímann líða í yfirfullum lestum og strætisvögnum. Ég er reyndar svo heppin að vera ekki nema 15 mín í lestinni á morgnanna og stundum fæ ég meira að segja sæti. Aðrir eru ekki svo heppnir, ferðin tekur jafnvel rúmlega klukkutíma og lestinn hugsanlega full og engin sæti. Þannig að til að tíminn líði nú hraðar þá grípur fólk til ýmissa ráða s.s.
- syngja, raula eða tala við sjálft sig
- gera plön fyrir kvöldið eða næsta vinnudag
- vinna á ferðatölvuna, skrifa, lesa
- pirra sig á samferðafólki eða góna á fallegt fólk af gagnstæðu kyni (mér finnst þetta skemmtilegast :-))
- hlusta á tónlist eða hljóðbók
- 'oral gratification' sem felst í því að jórtra tyggjó, tala í símann eða við samferðafólk, éta
- 'abusing substances' þ.e. reykja og drekka áfengi (hmmm.... ég hélt að reykingar væru bannaðar í öllum almenningssamgöngufarartækjum)
- hugleiða eða biðja
Og það sem angrar fólkið mest er
- þrengsli og plássleysi
- hátt stillt tónlist
- seinkanir
- vond lykt
- matarlykt
Lyktin helst oft í hendur við þrengslin - ég var t.d. nálægt því að æla í lestinni um daginn þegar ég var svo óheppin að lenda í fullri lest af Chelsea aðdáendum á leiðinni á leik!! Ég var að koma úr ræktinni og þ.a.l. nýkomin úr sturtu en mér fannst ég næstum þurfa að fara aftur í sturtu þegar ég kom heim, þvílíkur var fnykurinn.

1 Comments:
iPod er bjargvætturinn!
Skrifa ummæli
<< Home