þriðjudagur, maí 01, 2007

Allir í röð og tveir í biðröð

Englendingar kunna að standa í röð. Einu staðirnir sem þeir bíða ekki í röð er í neðanjarðalestunum og þegar þeir bíða eftir strætó! Þeir standa í röð heila nótt til að bíða eftir opnun nýrrar tískuverslunar sem selur ódýrar eftirlíkingar af merkjavöru. Allt í lagi með það ef ekki væri að þeir sem þræla sér út við að sauma þessi föt eru Bangladesar sem fá ca 5p á tímann og þetta eru ekki 5 pund, þetta eru 5 pens!!!

Nú svo standa þeir í röð til að kaupa poka sem eru ekki plastpokar og það stendur á þeim 'I'm not a plastic bag' . Þetta á að vera svakalega vistvænt, það er aðal tískan hér núna, að vera vistvænn, hjóla og endurvinna og ég veit ekki hvað og hvað. En hvað kemur í ljós? Jú, pokarnir atarna eru framleiddir af ódýru vinnuafli í Kína

Og síðast en ekki síst standa þeir í röð fyrir utan Topshop til að geta keypt föt hönnuð af módeli sem lítur alla jafna út eins og pokakerling á heróíni!!

Hmmm....

Þegar ég les þennan póst yfir þá ætti náttúrulega að standa 'þær' alls staðar þar sem stendur 'þeir' því það eru sko ekki karlmenn sem láta plata sig svona hrikalega. En konum til varnar þá má nú kannski segja að karlarnir falla bara fyrir alls konar græjum og tækjum og tólum og bílum sem kosta sennilega oft og tíðum heilum mánaðar- og jafnvel árslaunin!

Er að horfa á 'How to look beautiful naked' - frekar athyglisvert. Veit allavega að kjólarnir sem ég keypti mér um daginn eru með rétta sniðinu fyrir bumbulínu eins og mig :-)

2 Comments:

At 01 maí, 2007 21:00, Anonymous Nafnlaus said...

Englendingar klikka ekki. Verst hvað við erum farin að líkjast þeim mikið - en kannski betra að snúa sér að EastEnders heldur en Guiding Light

 
At 02 maí, 2007 09:09, Blogger Londonia said...

Eastenders er náttúrulega bara snilld en ég verð að viðurkenna að ég hef voða gaman af Guiding Light þegar ég kem heim :-) Þarf eiginlega að athuga hvort það er ekki hægt að horfa á þetta á netinu og vera þá 'up to date' en ekki 10 árum á eftir eins og heima :-) Svo fylgir Coronation Street fast á hæla Eastenders, ekki síðri sápa með verulega skemmtilegum týpum.

 

Skrifa ummæli

<< Home