föstudagur, apríl 28, 2006

Vorið er komið og grundirnar gróa...

Og blómin springa út á trjánum og ég byrja að hnerra og klæja í augun :( Og svo stíflast nefið og ég get ekki andað með nefinu. Það endar í þurrum skemmtilegum hósta, svona hausverkjahósta. Til að bæta gráu ofaná svart þá bættist nett steinsmuga við þetta allt saman og eins og það sé ekki nóg, nei... harðsperrur dauðans eftir klukkutíma með Antonio einkaþjálfara á miðvikudaginn. Þurfti að leigja mér hjólastól og á í mestu vandræðum með að setjast á settið... sem er soldið slæmt þegar maður er með nettan niðara.
Þetta voru sem sagt helstu fréttir af heilsufari mínu þessa dagana. Og helgin átti að vera djammhelgi í Berlín, lítur út fyrir að ég eyði tímanum í rúminu á hótelinu! Ætla að láta mig hafa það að fara, ekki get ég sent GAA eina, fyrir utan að tapa 350 pundum. Er heima við tölvuna í dag en ætla líka að fara í sjóðandi heitt bað til að lina harðsperrurnar, leysa smá Vicks krem uppí sjóðandi vatni og fara í heimatilbúið gufubað. Prófaði það í gær og held að ein teskeið af kreminu sé alveg nóg - tvær teskeiðar eru heldur mikið, náði varla að tolla undir handklæðinu nema 1-2 mínútur í einu því mentolgufurnar voru svo sterkar.
Annars voru páskarnir alveg hreint dægilegir þrátt fyrir að fá ekki að sofa út einn einasta morgun. Mér fannst hins vegar voða notalegt að vera kvödd með vinki og fingurkossi morgnana sem ég fór í vinnuna :) Fórum í dýragarðinn, út að róla, út að borða, út að róla, lögðum okkur, út að róla... sem sagt alveg brilljant afslappelsi. Síðan þær Monopoly mæðgur fóru hefur lífið smám saman komist í fastar skorður, vinna-borða-sofa pakkinn, hef líka náð að fara soldið í ræktina, labba heim úr vinnunni, synda og ég veit ekki hvað og hvað.
En nú ætla ég að reyna að bæta heilsuna með hinum ýmsu húsráðum og svo er kannski ráð að pakka niður einhverjum lörfum :)

mánudagur, apríl 10, 2006

Friðurinn úti...

Mini Monopoly er mætt á svæðið og mamma hennar fékk náðarsamlegast að koma með. Sú stutta var víst þæg og stillt í flugvélinni en fannst ferðalagið nú reyndar alveg passlega langt og vildi bara komast út úr þessari flugvél eftir ca hálftíma. Sama sagan í leigubílnum frá flugvellinum og tók sú bílferð þó ekki nema hálftíma. En hún tók því með jafnaðargeði að það þjónaði engum tilgangi að yfirgefa fína leigubílinn á miðri M4 hraðbrautinni. Hún beit það svo í sig að hún væri sko alls ekki þreytt og þrjóskaðist við að leggja sig og hélt að sjálfsögðu vöku fyrir móður sinni líka. Þær voru því orðnar ansi fölar og þreytulegar þegar líða tók á daginn. Mini gleymdi svo þvermóðskunni í smástund og lognaðist að sjálfsögðu út af og það var eins og að tala við stein þegar átti að vekja hana til að fara út að borða. En það náðist nú samt á endanum (og þá vitum við hvaðan Mini Monopoly hefur þrjóskuna) og við borðuðum gómsætar pizzur á Zizzi's. Þær mæðgur sváfu svo bara á sínum grænu eyrum í morgun þegar ég fór í vinnuna, sváfu reyndar langleiðina fram að hádegi - svona á að sofa í fríum, það er alveg ljóst. Vona bara að þær haldi því áfram :)

fimmtudagur, apríl 06, 2006

peningar eða útlit

Skemmtileg frétt í Daily Mail í dag (sem mér skilst að sé fordómafullt rasistablað en er samt með ágætis kvennakafla á fimmtudögum). Samkvæmt nýrri könnun meðal kvenna á aldrinum 18-35 ára þá verður það æ algengara að konur velji sé karla eftir útlitinu en ekki eftir stöðu og innkomu eins og áður tíðkast. Þetta stafar að sjálfsögðu af auknu fjárhagslegu sjálfstæði kvenna og er að sjálfsögðu hið besta mál. Og þeim mun fjáðari sem konur eru, þeim mun meiri áhersla á útlit steggjanna! Þannig að búðastrákur sem lítur út eins og grískur guð er eftirsóknarverðari en lúðalegur forstjóri með skrilljónir í veskinu. Ég verð nú hreinlega að viðurkenna að það er nú svolítið til í þessu - verst að maður skuli ekki eiga meira af peningum ;-)

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Helgin

Helgin var með annasamara móti hjá mér. Eins og áður hefur komið fram þá skrapp ég aðeins út á föstudagskvöldið í tilefni þess að vorið kom á fimmtudaginn :) Smá hvítvín með GAA, fórum svo á franskan stað og fengum okkur að borða... allt í mestu rólegheitum og ég var komin heim um 11 leytið. Á laugardagskvöldinu fór eitthvað minna fyrir rólegheitunum sem við ætluðum að endurtaka frá föstudagskvöldinu. Fengum okkur að borða í Knightsbridge, kíktum á kokteilbar þar í nágrenninu en enduðum á svo voða posh klúbb sem heitir KínaHvítt (set nafnið á íslensku svo einhverjir klámkallar finni nú ekki bloggið mitt aftur) og dönsuðum fram á morgun. Lentum báðar á 'sjéns' en þar sem maður er nú bæði varkár og prim & proper þá var það nú ekki nema smá dans og nokkrir kossar. Pilturinn vildi hins vegar óður og uppvægur fá hjá mér símanúmerið og hann hringdi strax á sunnudeginum! Aðeins í yngri kantinum en virðist hins vegar áhugasamur um þroskaðar konur!! Veit nú ekki alveg hvað mér finnst um það en það gæti nú verið fróðlegt að komast að því ;-) Kannski ekki vitlaust að ná sér í leikfang til að halda sér ungri, svona þegar fertugsafmælið nálgast óðfluga. Og ég sem sagt fór að hitta hann eftir ræktina í gær! Og hann er reyndar kominn yfir þrítugt, rétt svo, verður 32 á þessu ári. En ég fékk ekki í hnén, því miður - veit ekki hvort hann fær annan sjéns á að heilla mig, aldrei að vita, það kemur í ljós ef ég hitti hann aftur.Depeche Mode... Depeche Mode... Depeche Mode... voru bara BRILLJANT. Tóku lögin af nýju plötunni og svo slatta af gömlum lögum. Var frekar fúl að fá ekki að fara með nýju myndavélina mína inn í salinn, ætlaði loksins að ná almennilegum myndum á tónleikum en þar sem linsan á vélinni minni er 18-55mm telst hún vera professional myndavél en ekki bara hobbymyndavél :( Þannig að ég tók engar myndir en gæti nú hugsanlega orðið mér útum nokkrar frá samferðafólkinu.

laugardagur, apríl 01, 2006

Ég er svoooo dugleg :)

Skellti mér barasta í ræktina um hádegisbilið og var voða voða dugleg. Enda þýðir ekkert annað þar sem sumarið er framundan og maður eða öllu heldur kona, þarf að komast í bikinihæft ástand ;) Sumaleyfisplönin eru að taka á sig einhverja mynd, loksins. Allt útlit fyrir að ég skelli mér til Bahamas í byrjun júlí. Þarf bara að finna mér flug á góðu verði og þá er allt klappað og klárt :) Get ekki beðið. Monopoloy og Mini Monopoly ætla að færa mér bókina um danska kúrinn þannig að kílóin fá að fjúka eitt af öðru. Nú og svo náttúrulega er það ræktin og hann Antonio, þjálfarinn minn :-Þ Allt mjög hvetjandi sem sagt.
Við GAA ætlum jafnvel að kíkja eitthvað út úr húsi í kvöld, eitthvað rólegt bara eins og í gær en allavega er kominn vorfiðringur í okkur og þ.a.l. ekki hægt að sitja heima öll kvöld. Þangað til ætla ég að kíkja í blaðið, ráða Samurai SuDoku gátu dagsins og hlusta á Depeche Mode. Er nefnilega að fara á tónleika með þeim á morgun... vá hvað ég hlakka til að sjá þá 'live'.