föstudagur, apríl 20, 2007

Hvað gerir fólk á leiðinni í og úr vinnu

Það er ýmislegt sem fólk gerir sér til dundurs til að láta tímann líða í yfirfullum lestum og strætisvögnum. Ég er reyndar svo heppin að vera ekki nema 15 mín í lestinni á morgnanna og stundum fæ ég meira að segja sæti. Aðrir eru ekki svo heppnir, ferðin tekur jafnvel rúmlega klukkutíma og lestinn hugsanlega full og engin sæti. Þannig að til að tíminn líði nú hraðar þá grípur fólk til ýmissa ráða s.s.
  • syngja, raula eða tala við sjálft sig
  • gera plön fyrir kvöldið eða næsta vinnudag
  • vinna á ferðatölvuna, skrifa, lesa
  • pirra sig á samferðafólki eða góna á fallegt fólk af gagnstæðu kyni (mér finnst þetta skemmtilegast :-))
  • hlusta á tónlist eða hljóðbók
  • 'oral gratification' sem felst í því að jórtra tyggjó, tala í símann eða við samferðafólk, éta
  • 'abusing substances' þ.e. reykja og drekka áfengi (hmmm.... ég hélt að reykingar væru bannaðar í öllum almenningssamgöngufarartækjum)
  • hugleiða eða biðja

Og það sem angrar fólkið mest er

  • þrengsli og plássleysi
  • hátt stillt tónlist
  • seinkanir
  • vond lykt
  • matarlykt

Lyktin helst oft í hendur við þrengslin - ég var t.d. nálægt því að æla í lestinni um daginn þegar ég var svo óheppin að lenda í fullri lest af Chelsea aðdáendum á leiðinni á leik!! Ég var að koma úr ræktinni og þ.a.l. nýkomin úr sturtu en mér fannst ég næstum þurfa að fara aftur í sturtu þegar ég kom heim, þvílíkur var fnykurinn.

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar elskurnar mínar

Það var því miður ekki frí hér eins og heima á Íslandi en hér var hins vegar sumar ;-) Þeim fannst það frekar fyndið Bretunum að það væri fyrsti dagur sumars á Íslandi og hitastigið undir frostmarki!

Það hefur helst verið í fréttum hér að Villi prins er hættur með kærustunni. Það var á forsíðum allra blaða á sunnudaginn, aðalfréttin á BBC og bara ekki talað um annað. Sum blöðin leiddu getum að því að hún væri of 'middle class', ekki nógu fín fyrir kóngafólkið. Mamman þykir sérlega ófín, notar tyggjó, segir 'Pleased to meet you' í staðinn fyrir 'How do you do' og eitthvað fleira sem er ekki nógu 'stiff upper lip'legt fyrir rojal-liðið. Villi er víst nett brjálaður yfir þessu... þykist sennilega vera ósnobbaður sjálfur sem margir draga stórlega í efa.

fimmtudagur, apríl 12, 2007

mikið var...

segja eflaust einhverjir... þ.e.a.s. ef einhverjir eru ennþá að tékka á því hvort ég hafi bloggað eður ei. Einmuna pennaleti verið í gangi án þess þó að það hafi verið svo viðburðasnautt hjá mér undanfarið. Þetta hefur helst á daga mína drifið:
  • Eftir Afríku-ferðina skrapp ég aðeins til Íslands á eitt stykki aðalfund og svo á árshátíð. Þar eyddi ég góðum parti kvöldsins í að leita að fólkinu sem mig langaði að hitta en sökum fjölmennis gekk hálf illa að finna það. Öðrum góðum parti var svo varið í að komast á og frá snyrtingunni en það var ca. 10-15 mín. gangur þangað. Hefði verið vel þegið að hafa sætaferðir - þá hefði kvöldið nýst betur :-)
  • Hafði því miður lítið tækifæri til að hitta vini og ættingja í þessu stoppi en náði þó að hitta Mánalinginn minn sem verður stærri og gáfaðri með hverjum deginum. Ég hef það eftir föður hans að sá stutti sé alvarlega sýktur af skíða-bakteríunni eftir margar góðar salíbunur í Seyðisfjarðar-fjöllum. Ef einhverjir skíðaiðkandi ættingja eða vinir lesa þetta þá mættu þeir hinir sömu gjarnan bjóða drengnum með sér í skíðatúra út fyrir höfuðborgarsvæðið :-)
  • Fékk Guðbjörgu systur í heimsókn um páskana, voða ljúft. Hún kom færandi hendi með bláberjalambalæri úr Gallerý Kjöti. Bauð íslensku vinafólki í mat á páskadag og þau eru enn að tala um hvílíkt lostæti var á boðstólum. Við skruppum líka til Cambridge þar sem fram fór árleg róðrakeppni milli Cambridge og Oxford. Því miður náðum við ekki að berja augum vöðvastælta ræðara en í sárabætur fórum við í smá bátsferð á ánni sem rennur gegnum bæinn.
  • Engar fréttir af sjénsastandi - skilaði manninum og fer því engum sögum af honum meir.
  • Alsendis óvíst hvenær ég kem heim næst en þó ekki ólíklegt að það verði helgina 17.-20. maí. Þá skilst mér að einn úr pottormahópnum mín um ætli að halda uppá merkisafmæli og það sem trekkir ekki síður, 25 ára útskriftarafmæli úr Hlíðaskóla :-)
  • Engin áform ennþá varðandi sumarleyfi en þó gæti verið á dagskrá að heimsækja Jóda frænda til Tokoy einhvern tímann á haustmánuðum.
  • Reyni að koma einhverjum myndum inn fljótlega frá Afríkuferðinni :-)

Af innfæddum er einna helst að frétta að þeir eru iðnir við að stinga/skjóta hvern annan til bana þessa dagana, sérstaklega unglingarnir. Eitthvað eru menn ráðalausir hvað gera skuli - hér vantar greinilega eitt stk. MótorsmiðjuMumma. Blair og Cameron blaðra einhverja bölvaða dellu um hvað skuli gera eins og hækka aldur þeirra sem mega eiga skotvopn! Eins og það breyti einhverju!

Nú svo opna hér fataverslanir á hverju horni sem ekki væri í frásögur færandi nema að á skírdag opnaði stórverslun á Oxford Street og var hamagangurinn svo mikill að flytja þurfti einhverja starfsmenn á slysadeild með minniháttar meiðsli og kalla þurfti út viðgerðarmenn til að gera við dyrnar. Verslun þessi selur ódýrar eftirlíkingar af merkjavörum, sem detta í sundur við fyrsta þvott og ef þær gera það ekki þá lita þær allan annan þvott eða eru svo rafmagnaðar að það mætti knýja umhverfisvænan Smart bíl. Og á þriðjudaginn, þegar ég kom úr ræktinni sem er í kjallaranum á næsta horni við þessa verslun, þá lá röðin hálfan hring kringum húsaröðina... já... ég sagði HÚSARÖÐINA. Það mætti halda að sjoppan verði bara opin í viku en ekki um ókomna tíð. En fyrir þá sem hafa áhuga í næstu Lundúnaferð þá heitir búllan Primark og er á fyrsta horni frá Marble Arch :-)

Nú svo ætla einhverjir starfsmenn neðanjarðarlestanna í verkfall í þrjá daga í næstu viku! Það er ekki gott. Það er eiginlega mjög slæmt. Það þýðir að annað hvort þarf ég að labba í vinnuna (sem tekur alveg rúmlega klukkutíma) og heim aftur eða taka strætó og það gæti tekið ansi langan tíma þegar allir sem annars væru að taka lestina fara á bíl í vinnuna.

En ætli sé ekki best að reyna að gera eitthvað af viti :-)

knús og kreistur
Londonia

PS: þið megið alveg tjá ykkur, senda mér kveðjur og kossa - svona svo ég viti að þið hafið kíkt á bullið mitt ;-)