Og enn er ég dugleg :-)
Vaknaði aftur í morgun og skellti mér í ræktina. Svei mér þá ef þetta gæti ekki komist uppí vana - það væri ekki slæmt. Myndi þá væntanlega enda høj og slank :-)
Ég var eitthvað að tala um raðir þarna um daginn. Enn ein röðin í dag og núna fyrir utan Boots. Konur að kaupa hrukkukrem sem ku víst virka - það er nú alveg frétt út af fyrir sig. Og málið er að þetta er ekki krem sem kostar hvítuna úr augunum heldur ca 6 eða 7 pund og er No7 sem er víst Boots 'own brand' Og það sem meira er, það hefur verið í hillunum í einhver ár en svo datt einhverjum háskólanum að gera rannsókn á því hvort þetta væri ekki allt sama tókbakið, þessi blessuðu hrukkukrem og viti menn, eitt þeirra virkaði og það var ekki 150 punda krukka frá Dior eða Chanel eða eitthvað. Nei, 7 punda túpa frá Boots - Skemmtilegt :-)
Bretar eru líka afskaplega uppteknir af 'health and safety' og þá aðallega 'safety'. Nú er Camden hverfisráðið búið að banna útigrill á opinberum samkomum! Þegar haldnar eru hverfissamkomur mega íbúarnir sem sagt ekki mæta með grillin og grilla pulsur og borgara, nei það þarf að borga fyrir rándýra grillara sem hafa víst meira vit á því hvernig á að koma í veg fyrir að fólk brenni sig á grillunum.
Heimilislausir Pólverjar hafa fundið fína lausn á sínum málum hér í borg. Þeir borga 20 pens til að opna almenningsklósett sem eru á víð og dreif um borgina og gista þar á nóttunni. Þetta kallar maður sjálfsbjargarviðleitni á heimsmælikvarða, enda engin ástæða til að láta svona skjólshús standa auð yfir nóttina :-)
Ég rak augun í þessa frétt á Mbl.is - það má ENGINN missa af þessu. Ég sá reyndar ekki risessuna hér í London en ég sá fílinn sem bregður fyrir í fréttinni og þetta er sko meira en magnað
Jæja, nú er ég búin með hafragrautinn og langt komin með kaffið þannig að það er best að fara að vinna :-)
1 Comments:
Guð, hrikalega ertu dugleg Ída, dáist að þér.
Ætlaði um daginn að prufa svona morguntíma, en þegar klukkan hringdi þá var ekki séns að vakna svona snemma. Hef ekki gert aðra tilraun.
Já fyndið með hrukkukremið - held meira að segja að ég hafi átt svona krem, þar sem námsmenn eru ekkert að splæsa á dýr krem ha ha.
Bestu kveðjur til London og hafðu það gott um helgina með stepunum.
Jórunn
ps. sjáumst í Eurovision partýinu næstu helgi.
Skrifa ummæli
<< Home