þriðjudagur, janúar 31, 2006

Váááá....

Ég sá svooooo fallegan karlmann í hádeginu... á Pret a Manger af öllum stöðum... að ég hreinlega er bara dolfallin, sit bara hér og stari út í loftið! Ætli ég fari ekki bara að leggja leið mína á Pret í hverju hádegi, bara til að auka líkurnar á því að ég sjái hann aftur. Verst hvað samlokurnar þar eru vondar en það er ýmislegt á sig leggjandi :)

sunnudagur, janúar 29, 2006

Þessir Bretar

Ótrúlegt hvað er mikið um skandala í pólitíkinni hér og einhverra hluta vegna eru þeir allir hjá sama flokknum, Frjálslyndum demókrötum (ekki biðja mig að útskýra stefnu þeirra, Monopoloy er mun betur fallin til þess). Fyrst segir formaður flokksins af sér - fannst víst heldur gott að fá sér i staupinu og það þótti víst ekki gott að hann væri rorrandi fullur að greiða atkvæði um mikilvæg mál. Næst var það gifti gaurinn sem hélt við karlmann sem leggur stund á elstu atvinnugrein í heimi. Og ekki var því lokið því núna í vikunni þá kom formannsefnið út úr skápnum sem tvíkynhneigður. Veit ekki af hverju hann hafði verið með einhverjar yfirlýsingar fyrir einhverju síðan um að hann væri EKKI samkynhneigður - einhverjar grunsemdir hafa verið um það greinilega. Og nú er allt vitlaust, ekki af því maðurinn er bæ heldur af því hann laug!
Og The Times heldur að ekki sé öllu lokið enn... einhver orðrómur hefur verið um að enn einn Lib Dem gaur hafi ekki alveg hreina samvisku í framhjáhaldsdeildinni.
Nú svo er Celebrity Big Brother loksins lokið. Fyrir þá sem ekki vita þá er Big Brother raunveruleikasjónvarp
http://www.channel4.com/bigbrother/ þar sem hópur af fólki þarf að búa saman í 3-4 vikur. Og ekki bara búa saman, þau eru undir sama þaki 24/7. Og auðvitað þurfti celebrity útgáfu af þessu líka... fyrir 'fræga' fólkið. 'Fræga' fólkið er 'has been' lið sem er að reyna að komast aftur á síður slúðurblaðana. En tvistið núna var að ein í hópnum var alls ekkert fræg, hefur unnið sem Paris Hilton lookalike og eitthvað álíka spennandi. Og stúlkukindin bara vann dæmið, frekar skemmtilegt, non celebrity vann Celebrity Big Brother.
Nú, svo hafa hinar ýmsu skoðanakannanir leitt ýmislegt í ljós um breska þjóðarsál. Samkvæmt þessu þá geta þeir verið uppátækjasamir í einkalífinu þannig að það er spurning um að reyna að blikka þessa bresku http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1181211 þó að fram að þessu hafi þeir ekki fengið sérlega góða dóma hjá þeim sem ég þekki og þekkja betur til þeirra en ég!
Deitið í gær var svona lala... ekki spennt, frekar lummó þessi þjóðverji sem heldur að hálskirtlahreinsun sé the way to go! Eða ég ímynda mér það miðað við tilburðina þegar hann reyndi að kyssa mig!! Held ég sleppi fleiri deitum með honum!
En þetta var fínn sunnudagur, langt símtal við Tótu - tími til kominn að einhver slái á þráðinn!! Mætti stundum halda að það væri bara hægt að hringja frá Bretlandi til Íslands ;) Smá svona kvart. Fór svo í Tate Modern að hitta tvær úr vinnunni heima, borðaði með þeim á All-Bar-One niðri við á og er nýkomin heim. Ætla að vera skynsöm í kvöld og koma mér í bælið fyrir miðnætti svo ég endi ekki jafn þreytt næsta föstudag eins og ég var í fyrradag.

laugardagur, janúar 28, 2006

Bara til að gleðja ykkur...

þá er hlýrra á Íslandi en í London þessa dagana. Hélt að andlitið myndi detta af mér í göngutúrnum í Hyde Park í morgun. Stóð örugglega í hálftíma undir heitri sturtunni þegar ég kom heim. Ætla nú samt að láta mig hafa það að rölta út á eftir að hitta þann þýska á pöbbnum... vona að hann verið ekki eins ágengur og síðast!

fimmtudagur, janúar 26, 2006

:(

Það langar greinilega engan með mér til New York... ég skil fyrr en skellur í tönnum.

Annars veit ég ekki hvort ég fer nokkuð á næstunni, allavega ekki næstu daga. Svelgdist svo á kaffinu mínu í morgun að ég hóstaði næstum upp lungunum og hef sennilega tognað einhvers staðar innvortis því ég get varla hreyft mig. Er ekki viss um að geta mætt með liðinu úr vinnunni á salsa barinn í kvöld :(

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Langar engan í helgarferð til New York...

Mig langar svo svakalega að gera eitthvað skemmtilegt helgina 9.-13. febrúar og var að kíkja á Icelandair vefinn og get fengið flug héðan til New York á £190. En mig vantar ferðafélaga... langar ekki einhvern að skreppa með mér :)

sunnudagur, janúar 22, 2006

Leti helgi

svo vægt sé til orða tekið. Fékk sjónvarpið úr viðgerð á föstudaginn - hefði sennilega getað gert við það sjálf, bara eitthvað sem var dottið úr sambandi. Allavega, tók gott sófakvöld fyrir framan tv-ið. Byrjaði að horfa á Pride & Prejudice sjónvarpsseríuna sem ég fékk gefins... algjör snilld og það verður að segjast að Colin Firth sem Mr. Darcy er BARA sexy, jafn fúll og leiðinlegur og hann er í þáttunum. Bíð spennt eftir blaut-skyrtu-atriðinu :þ
Gærdagurinn var svo eiginlega líka í rólegheitum, Anti-Heart-Attack morgunverður á Troubadour sem er að verða uppáhalds morgunverðarstaðurinn minn, las laugardags Tímann, kláraði Samurai Su Doku gátuna en komst ekkert áfram með Shogun Su Doku gátuna - hún er 11 föld og pínu snúin. Ætlaði svo í bíó en það varð ekkert af því. Skrapp hins vegar aðeins á pöbbinn, átti bara að vera eitt hvítvínsglas en fór að spjalla við e-n Þjóðverja og endaði í 4 hvítvínsglösum á 3 pöbbum, kebab úti á horni og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar maðurinn fór að ýja að því að koma með mér heim í kaffisopa þá kvaddi ég pent og kom mér heim. Samþykkti að hitta hann í kaffi í dag en guggnaði á því... en aldrei að vita nema ég hitti hann síðar. Fanns hann samt heldur ákafur... á þriðja bjór reyndi hann að kyssa mig og halda í hendina á mér... soldið desperate eitthvað

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Thank god it's Tuesday

því dagurinn í gær var Mánudagurinn beint frá helvíti. Byrjaði á því að sofa yfir mig (því ég sofnaði ekki fyrr en rúmlega 3 kvöldið áður vegna kaffidrykkju eftir kvöldmat). Náði þ.a.l. ekki morgunsturtunni og heilinn hélt því áfram að sofa. Gleymdi lestarkortinu heima, keypti lestarmiða aðra leiðina í staðinn fyrir fram og til baka, gerði hverja gloríuna á fætur annarri í vinnunni - ætlaði t.d. að taka fundaherbergi af samstarfsmanni mínum í næstu viku fyrir fund sem verður ekki fyrr en í febrúar, ruglaði með flugferðir SE fram og til baka... endalaust rugl fram og til baka. Þannig að ég var nú bara komin uppí um hálf 11, las aðeins og gerði nokkrar Su Doku. Var því þokkalega spræk í morgun, komin undir sturtuna rétt rúmlega 7, mætt í vinnuna fyrir hálf 9 og er bara í góðum gír.

mánudagur, janúar 16, 2006

Flutt aftur á gamla bloggið mitt...

Hitt blogg svæðið er nefnilega ekki alveg að virka almennilega, eldri færslur týnast og ég veit ekki hvað og hvað. Svo skilst mér að það sé miklu einfaldara að setja inn myndir hérna þó að sennilega sé nú bara sniðugast að koma sér upp myndasíðu. En þið þurfið að hafa smá þolinmæði með mér þar sem útlitið á síðunni er eitthvað skrýtið og ég ekki alveg búin að læra hvernig ég laga það.
En það hefur sem sagt ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast... enda orðið langt síðan og það var stutt og snubbótt blogg ef ég man rétt :) Ég var náttúrulega aldrei búin að rekja jólafríið í smáatriðum og ég held að ég sleppi því nú bara, tek það frekar svona í stórum dráttum...

Miðvikudagur 21. des.:
Kl. 16:00 lending á Keflavíkurflugvelli. Guðbjörg systir sótti mig á völlinn, með flatbrauð með hangikjöti í poka handa stóru systur... þessi elska.
Bíleigubíll
Beint í heimsókn til Helga bró & co. Og stúlkan er náttúrulega bara fallegasta barn sem fæðst hefur. Ég get svo svarið það að það heyrðist ekki mannsins mál fyrir eggjastokkahljóðum í mér!! Ég veit ekki hvar þetta endar... vonandi með óléttu á endanum en ekki með einhverjum óþekktum manni eins og Drífu dreymdi í nótt!! Hún fletti því upp í galdrabókinni sinni og vanalega er ólétta í draumi tákn um velgengni og þróun. Og það var ekki bara ég sem var ólétt heldur hún og mágkona hennar líka :) Þannig að það er bara helvítis hamingja og sæla framundan :)

Fimmtudagur 22. des.:
Hádegisverður á Apótekinu með vinkonum úr ýmsum áttum
Labb upp Laugaveginn með vinkonu úr einni átt - enduðum á Óliver í smá hvítvíniHeimsókn til Helga bró & fjölsk. m.a. til að skrifa innkaupalista.

Föstudagur 23. des.:
Morgunkaffi hjá H bró & co og síðan var ætt í Bónus til að klára matarinnkaupin. Við kláruðum þau á mettíma enda engir aular á ferðinni.
Skötuveisla á Sögu með Hrönn & Sigga
Skrapp aðeins uppí vinnu eftir það að sækja jólagjöf sem ég átti þar og heilsa uppá liðið á 4. hæðinni.
Heim á Víðimelinn að pakka inn jólagjöfum.
Fallegustu mæðgur norðan Alpafjalla kíktu í heimsókn en hún varð frekar stutt í annan endann þar sem sú stutta gerði í buxurnar og engin auka bleyja með í för :)

Laugardagur 24. des.:Jól í Bogahlíð. Alveg hreint yndisleg. Við systkinin þreyttum frumraun okkar í rjúpnaeldamennsku og tókst bara nokkuð vel til. Kvöldið leið bara í rólegheitum, Mánalingurinn svo stilltur að það þurfti hreinlega að reka á eftir honum við að lesa á pakkana. Hann þurfti svo mikið að spjalla og skoða það sem við hin vorum að fá. Og stúlkukornið eins og lítill engill, heyrðist ekki í henni, bara svar og drakk og svaf :)

Sunnudagur 25. des.:
Brunaði í bústaðinn til Dunnu og Geira ásamt Soffíu frænku sem býr í Danmörku. Algjört afslappelsi, dásamlegur matur og enn dásamlegri félagsskapur.

Mánudagur 26.des.:
Kvöld. Enn brunað af stað og nú í Stykkishólm með stuttri viðkomu á Selfossi að hirða upp fjölskyldumeðlimi og vini þeirra. Skítaveður og leiðindafærð og því ótrúlega gott að komast á leiðarenda.

Miðvikudagur 28. des.:
Og eina ferðina enn rauk ég af stað og nú til baka til Reykjavíkur eftir mjög svo dægilega daga í Hólminum.
Með Önnu Maríu frænku í leikhúsið að sjá Dóru frænku í Sölku Völku. Vá hvað hún var flott! Kíktum svo í kaffi til hennar á eftir.

Fimmtudagur 29. des.:
Eftir hressandi morgunsturtu... beint til Drífu Sig í brunch ásamt Þórunni Kvaran. Enn og aftur afskaplega notalegt hádegi.
Kokteill Frjálsrar verslunar á Sögu - menn ársins... ekki hægt að láta sig vanta þar.
Matur hjá Hrönn og Sigga. Tóta og Hjörtur komu þangað að spila. Tókum nett Trivial, nokkuð ljóst að maður er alveg kominn úr æfingu að spila.

Föstudagur 30. des.
Nett leti í gangi... loksins :) Fór ekki út úr húsi fyrr en seint og um síðir, kíkti í bæinn, skipti einhverjum jólagjöfum og endaði svo í kaffi með pottormum á Iðu.
Og þá var komið að djamminu í þessu jólafríi. Hitti Karíus bróður og fleiri úr vinnunni á Thorvaldsen, kíktum á Óliver, aftur á Thorvaldsen því það var svo mikil röð á Ölstofunni. Endaði svo, ásamt fyrrverandi landlordinum mínum í stuttu innliti hjá Jonna leigjanda sem er ekki leigjandi lengur heldur nýfluttur í voða flotta íbúð. Fannst þettas svo bara orðið ágætt og var komin heim um 3 leytið.

Laugardagur 31. des.:
Saumóbrunch hjá HG - hrikalega gaman.
Fleygði mér svo aðeins áður en ég skveraði mér í sparifötin og dreif mig ásamt Smára bróður til Helga bróður. Önnur ljúf og notaleg kvöldstund, flugeldar og fínerí. Þrátt fyrir að hafa fengið óteljandi heimboð, þar sem m.a. átti að kynna mig fyrir fráskyldum 4 barna föður, sem var náttúrulega ótrúlega freistandi, þá rölti ég nú bara aðeins yfir til fallegu mæðgnanna í Eskihliðinni og svo kom Smári og sótti mig og við fórum nú bara heim á Víðimelinn.

Sunnudagur 1. jan.:
Brunch hjá Önnu Maríu ásamt Dóru og Dunnu. Fengum spá í bolla, sem ég hef þegar minnst á og ætla því ekki að tíunda meira hér.
Til H bró og síðan með þeim í mat til Helgu frænku.

Mánudagur 2. jan.:
Allt búið :( Tími kominn til að pakka niður og fljúga aftur til London.

Þannig var það nú. Og þetta læt ég duga að sinni enda að geyspa sjálfa mig úr kjálkaliðunum.