fimmtudagur, maí 31, 2007

Ég vil fá mér kærasta...

sbr. hið ágæta lag með Hjálmum. Þetta horfir til vandræða, þetta karlmannsleysi á mér. Nú er mig farið að dreyma einkaþjálfarann minn á nóttunni og það þó að ég sé emjandi af harðsperrum eftir síðasta tímann með honum. Draumurinn var reyndar með þeim betri en ég er að fara að hitta manninn á eftir og hef mestar áhyggjur af því að ég blóðroðni um leið og hann birtist ;-)

föstudagur, maí 25, 2007

Færsla sem ég gleymdi að setja inn...

og því hefur hún sennilega farið fram hjá flestum þar sem hún lenti fyrir neðan fullt af öðrum færslum:

Hvað gerir fólk á leiðinni í og úr vinnu - frá 20. apríl

fimmtudagur, maí 10, 2007

Brjóstastækkun!!

Þar kom að því... haldiði að ég hafi ekki bara skellt mér í brjóstastækkun í morgun! Þið eruð hissa já! Ég er ekki hissa á því, hefði aldrei dottið í hug að ég ætti þetta eftir. En ég sem sagt fór á einu bretti úr stærð 40B í 36D :-) Svona geta nú mælingarnar hjá kellunum í M&S klikkað sem sögðu hér um árið að ég væri 40B, jafnvel 40C. Ég mátaði 40C og það bergmálaði í skálunum - hef alltaf staðið í þeirri meiningu að ég væri með frekar lítil brjóst og rétt slefaði í B skálar. En heldur betur ekki! Hef lengi ætlað mér að fara í alvöru mælingu og skellti mér loksins í morgun hjá Ribgy & Peller og þetta var niðurstaðan. Mæli með þeim. Og nú get ég farið að kaupa mér fína sæta brjóstahaldara því það er mun meira úrval til í stærð 36D heldur en 40B :-D

föstudagur, maí 04, 2007

Og enn er ég dugleg :-)

Vaknaði aftur í morgun og skellti mér í ræktina. Svei mér þá ef þetta gæti ekki komist uppí vana - það væri ekki slæmt. Myndi þá væntanlega enda høj og slank :-)

Ég var eitthvað að tala um raðir þarna um daginn. Enn ein röðin í dag og núna fyrir utan Boots. Konur að kaupa hrukkukrem sem ku víst virka - það er nú alveg frétt út af fyrir sig. Og málið er að þetta er ekki krem sem kostar hvítuna úr augunum heldur ca 6 eða 7 pund og er No7 sem er víst Boots 'own brand' Og það sem meira er, það hefur verið í hillunum í einhver ár en svo datt einhverjum háskólanum að gera rannsókn á því hvort þetta væri ekki allt sama tókbakið, þessi blessuðu hrukkukrem og viti menn, eitt þeirra virkaði og það var ekki 150 punda krukka frá Dior eða Chanel eða eitthvað. Nei, 7 punda túpa frá Boots - Skemmtilegt :-)

Bretar eru líka afskaplega uppteknir af 'health and safety' og þá aðallega 'safety'. Nú er Camden hverfisráðið búið að banna útigrill á opinberum samkomum! Þegar haldnar eru hverfissamkomur mega íbúarnir sem sagt ekki mæta með grillin og grilla pulsur og borgara, nei það þarf að borga fyrir rándýra grillara sem hafa víst meira vit á því hvernig á að koma í veg fyrir að fólk brenni sig á grillunum.

Heimilislausir Pólverjar hafa fundið fína lausn á sínum málum hér í borg. Þeir borga 20 pens til að opna almenningsklósett sem eru á víð og dreif um borgina og gista þar á nóttunni. Þetta kallar maður sjálfsbjargarviðleitni á heimsmælikvarða, enda engin ástæða til að láta svona skjólshús standa auð yfir nóttina :-)

Ég rak augun í þessa frétt á Mbl.is - það má ENGINN missa af þessu. Ég sá reyndar ekki risessuna hér í London en ég sá fílinn sem bregður fyrir í fréttinni og þetta er sko meira en magnað

Jæja, nú er ég búin með hafragrautinn og langt komin með kaffið þannig að það er best að fara að vinna :-)

miðvikudagur, maí 02, 2007

Vá hvað ég er dugleg :)

Vaknaði korter fyrir 6 í morgun og var mætt í laugina í ræktinni kl. hálf 7 og í vinnuna kl. 8. Og þetta tókst mér án hjálpar! Fallegi þjálfarinn minn, hann Antonio, ætlaði að hringja í mig og vekja mig í morgun en hann gleymdi því. Mér tóks hins vegar að koma mér framúr án hans aðstoðar. Hefði reyndar helst viljað að hann ýtti við mér frekar en að hringja en það er önnur saga sem ekki verður farið nánar út í hér!
Helgin á næsta leyti, vinkonur frá Íslandi í heimsókn - get ekki beðið :-) Fögur fyrirheit um reykleysi og bindindi fjúka væntanlega út um gluggan um leið og þær mæta á staðinn en það koma ekki allir dagar í einu og því nægur tími til að standa við þau fyrirheit.

þriðjudagur, maí 01, 2007

Allir í röð og tveir í biðröð

Englendingar kunna að standa í röð. Einu staðirnir sem þeir bíða ekki í röð er í neðanjarðalestunum og þegar þeir bíða eftir strætó! Þeir standa í röð heila nótt til að bíða eftir opnun nýrrar tískuverslunar sem selur ódýrar eftirlíkingar af merkjavöru. Allt í lagi með það ef ekki væri að þeir sem þræla sér út við að sauma þessi föt eru Bangladesar sem fá ca 5p á tímann og þetta eru ekki 5 pund, þetta eru 5 pens!!!

Nú svo standa þeir í röð til að kaupa poka sem eru ekki plastpokar og það stendur á þeim 'I'm not a plastic bag' . Þetta á að vera svakalega vistvænt, það er aðal tískan hér núna, að vera vistvænn, hjóla og endurvinna og ég veit ekki hvað og hvað. En hvað kemur í ljós? Jú, pokarnir atarna eru framleiddir af ódýru vinnuafli í Kína

Og síðast en ekki síst standa þeir í röð fyrir utan Topshop til að geta keypt föt hönnuð af módeli sem lítur alla jafna út eins og pokakerling á heróíni!!

Hmmm....

Þegar ég les þennan póst yfir þá ætti náttúrulega að standa 'þær' alls staðar þar sem stendur 'þeir' því það eru sko ekki karlmenn sem láta plata sig svona hrikalega. En konum til varnar þá má nú kannski segja að karlarnir falla bara fyrir alls konar græjum og tækjum og tólum og bílum sem kosta sennilega oft og tíðum heilum mánaðar- og jafnvel árslaunin!

Er að horfa á 'How to look beautiful naked' - frekar athyglisvert. Veit allavega að kjólarnir sem ég keypti mér um daginn eru með rétta sniðinu fyrir bumbulínu eins og mig :-)